Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Treo Citrus - Freyðitafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Treo Citrus - Freyðitafla

Lausasölulyf
ATC Flokkur: N02BA51
ATC Heiti: Acidum acetylsalicylicum í blöndum þó ekki með geðlyfjum
Norrænt Vörunúmer: 464170
Markaðsleyfishafi: Cooper Consumer Health B.V.
Skráningardagsetning: 01.08.2019
Magn
Treo Citrus er lyf við verkjum.

Þú getur notað Treo Citrus við vægum verkjum, t.d. höfuðverk, vöðva- og liðverkjum, tíðaverkjum og
tannpínu. Þú getur einnig notað Treo Citrus við mígreni.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Treo Citrus inniheldur:

- Virk innihaldsefni: 1 freyðitafla inniheldur 500 mg af asetýlsalisýlsýru og 50 mg af koffíni.
- Önnur innihaldsefni: sítrónusýra, natríumhýdrógenkarbónat, natríumkarbónat,
natríumtvíhýdrógensítrat, natríumsítrat, mannitól (E421), natríumdókusat, póvidón, simeticon,
sítrónubragðefni (inniheldur súkrósa, maltódextrín og sojalesitín (E322)).

Lýsing á útliti Treo Citrus og pakkningastærðir
Útlit
Treo Citrus eru hvítar, kringlóttar og flatar freyðitöflur.

Pakkningastærðir
Treo Citrus er fáanlegt í pakkningastærðum með 10, 20 eða 60 (3x20) freyðitöflum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Cooper Consumer Health B.V.
Verrijn Stuartweg 60

1112AX Diemen
Holland

Framleiðandi
HERMES PHARMA GmbH
Hans-Urmiller-Ring 52
82515 Wolfratshausen,
Þýskaland

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í desember 2025.