Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Taptiqom - Augndropar, lausn í stakskammtaíláti
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Taptiqom - Augndropar, lausn í stakskammtaíláti

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: S01ED51
ATC Heiti: Timololum í blöndum
Norrænt Vörunúmer: 388898
Markaðsleyfishafi: Santen Oy
Skráningardagsetning: 01.07.2015
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Hvers konar lyf er þetta og hvernig verkar það?
Taptiqom augndropar innihalda taflúprost og tímólól. Taflúprost tilheyrir lyfjaflokki sem kallast
prostaglandínhliðstæður og tímólól tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkar. Taflúprost og
tímólól vinna saman að því að draga úr þrýstingi í auganu. Taptiqom er notað þegar augnþrýstingur
verður of hár.

Við hverju er lyfið notað?
Taptiqom er notað til að meðhöndla glákutegund sem kallast gleiðhornsgláka og einnig ástand sem
þekkt er sem háþrýstingur í auga hjá fullorðnum. Þetta tvennt tengist auknum þrýstingi í auga og getur
haft áhrif á sjón.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Taptiqom inniheldur
• Virku innihaldsefnin eru taflúprost og tímólól. 1 ml af lausn inniheldur 15 míkrógrömm af
taflúprosti og 5 mg af tímólóli.
• Önnur innihaldsefni eru glýseról, tólfvatnað tvínatríumfosfat, tvínatríumedetat, pólýsorbat 80,
saltsýra og/eða natríumhýdroxíð (til að stilla pH-gildi) og vatn fyrir stungulyf.

Lýsing á útliti Taptiqom og pakkningastærðir
Taptiqom er tær, litlaus vökvi (lausn) í stakskammtaíláti úr plasti sem hvert inniheldur 0,3 ml af lausn.
Hver posi inniheldur tíu stakskammtaílát. Taptiqom fæst í pakkningum sem innihalda 30 eða
90 stakskammtaílát.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Santen Oy
Niittyhaankatu 20
33720 Tampere
Finnland

Framleiðandi
Santen Oy
Kelloportinkatu 1
33100 Tampere
Finnland

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins og í Bretlandi (Norður-
Írland undir heitinu Taptiqom:
Austurríki, Belgía, Bretland (Norður-Írland), Búlgaría, Danmörk, Eistland,
Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ísland, Króatía, Kýpur,
Lettland, Litháen, Lúxemborg, Malta, Noregur, Portúgal, Pólland, Rúmenía,
Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Tékkland, Ungverjaland, Þýskaland


Loyada: Ítalía

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í júlí 2022.