Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Tamsulosin Medical - Hart hylki með breyttan losunarhraða
Lyf fyrir menn
Tamsulosin Medical-image

Tamsulosin Medical - Hart hylki með breyttan losunarhraða

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: G04CA02
ATC Heiti: Tamsulosinum
Norrænt Vörunúmer: 072701
Markaðsleyfishafi: Medical ehf.
Skráningardagsetning: 01.12.2017
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Tamsulosin er α1A-adrenvirkur viðtakablokki. Lyfið dregur úr vöðvasamdrætti í blöðruhálskirtli og
þvagrás.

Tamsulosin er notað til að draga úr einkennum frá þvagfærum vegna góðkynja stækkunar á
blöðruhálskirtli. Vegna vöðvaslökunarinnar á þvag greiðari leið um þvagrás og erfiðleikar við þvaglát
minnka.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Hvað inniheldur Tamsulosin Medical

− Virka innihaldsefnið er tamsulosin hydrochlorid 0,4 mg.
− Önnur innihaldsefni eru:
Hylki: Örkristallaður sellulósi, metakrýlsýru etýlakrýlat samfjölliða(1:1) dreifing 30 prósent,
Polysorbate 80, natríum lárýlsúlfat, þríetýlsítrat, talkúm.
Hylkið sjálft: Gelatín, indígókarmín (E132), títan tvíoxíð (E171), gult járnoxíð (E172), rautt
járnoxíð (E172), svart járnoxíð (E172).

Útlit Tamsulosin Medical og pakkningastærðir

Appelsínugult/ólífugrænt hylki með breyttan losunarhraða (19,3 x 6,4 mm). Hylkin innihalda hvítar til
drapplitaðar smákúlur.

Lyfið fæst í þynnupakkningum eða ílátum með 10, 14, 20, 28, 30, 50, 56, 60, 90, 100 eða 200 hylkjum
með breyttum losunarhraða.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Medical ehf.
Lynghálsi 13
110 Reykjavík
Ísland
Sími: 534 3500
Netfang: lyfis@lyfis.is

Framleiðandi
Adamed Pharma S.A., Pieńków 149, 05-152 Czosnów, Pólland
Synthon BV, Microweg 22, 6545 CM Nijmegen, Holland
Synthon Hispania S.L., Castelló 1, Polígono Las Salinas, 08830 Sant Boi de Llobregat, Spánn
HGA Biomed Kft. Nagygat u. 1. 7400, Kaposvár, Ungverjaland

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í maí 2024.