Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Tafil - Tafla
Lyf fyrir menn
Tafil-image

Tafil - Tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N05BA12
ATC Heiti: Alprazolamum
Norrænt Vörunúmer: 073841
Markaðsleyfishafi: Viatris ApS
Skráningardagsetning: 01.04.1987
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Tafil inniheldur virka efnið alprazólam. Það tilheyrir flokki lyfja sem kallast benzódíazepín. Lyfið
dregur úr kvíða.

Tafil er notað til meðferðar við kvíðaeinkennum hjá fullorðnum. Notkun Tafil á einungis við þegar
kvíðaeinkennin eru alvarleg, draga úr starfsgetu eða eru verulega íþyngjandi fyrir sjúklinginn. Lyfið er
eingöngu til skamtímanotkunar.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Tafil

töflur 0,25 mg, 0,5 mg og 1 mg innihalda:

Virka innihaldsefnið er alprazólam.
Önnur innihaldsefni eru örkristallaður sellulósi, laktósi (mjólkursykur), magnesíumsterat, maíssterkja,
natríumbensóat (E211), natríumdókúsat, vatnsfrí kísilkvoða.
0,5 mg töflur innihalda litarefnið erýtrósín (E127).
1 mg töflur innihalda litarefnin erýtrósín (E127) og indigótín (E132).

Lýsing á útliti Tafil og pakkningastærðir

Útlit
Tafil töflur 0,25 mg eru hvítar, sporöskjulaga, kúptar töflur með deiliskoru á annarri hliðinni og
merktar „UPJOHN-29“ á hinni hliðinni.
Tafil töflur 0,5 mg eru bleikar, sporöskjulaga, kúptar töflur með deiliskoru á annarri hliðinni og
merktar „UPJOHN-55“ á hinni hliðinni.
Tafil töflur 1 mg eru fjólubláar, sporöskjulaga, kúptar töflur með deiliskoru á annarri hliðinni og
merktar „UPJOHN-90“ á hinni hliðinni.

Pakkningastærðir
Tafil

er í þynnupakkningum og er fáanlegt í eftirfarandi pakkningastærðum:
0,25 mg: 20, 50 og 100 stk.
0,5 mg: 20, 50 og 100 stk.
1 mg: 20, 50 og 100 stk.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Viatris ApS
Borupvang 1
2750 Ballerup
Danmörk

Framleiðandi
Pfizer Italia S.r.l., Via del Commercio, 63100 Località Marino del Tronto, Ascoli Piceno (AP), Ítalía.

Mylan Hungary Kft, Mylan utca 1, 2900 Komárom, Ungverjaland

Umboð á Íslandi
Icepharma hf., Lynghálsi 13, 110 Reykjavík.

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í ágúst 2024.

Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vefnum: www.serlyfjaskra.is.