Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Symbicort Turbuhaler - Innöndunarduft
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Symbicort Turbuhaler - Innöndunarduft

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: R03AK07
ATC Heiti: Formoterol and budesonide
Norrænt Vörunúmer: 003310
Markaðsleyfishafi: AstraZeneca A/S
Skráningardagsetning: 01.05.2001
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Symbicort Turbuhaler er innöndunartæki sem notað er til að meðhöndla astma hjá fullorðnum og
unglingum 12-17 ára. Það er einnig notað til að meðhöndla einkenni langvinnrar lungnateppu (COPD)
hjá fullorðnum 18 ára og eldri. Það inniheldur tvö mismunandi virk efni: budesonid og
formoterolfumarattvíhýdrat.

• Budesonid tilheyrir flokki lyfja sem kallast barksterar. Budesonid virkar þannig að það minnkar
og kemur í veg fyrir bólgur og þrota í lungum.
• Formoterolfumarattvíhýdrat tilheyrir flokki lyfja sem kallast langverkandi beta2-
adrenviðtakaörvar eða berkjuvíkkandi lyf. Það virkar þannig að það slakar á vöðvunum í
öndunarveginum og léttir með því öndunina.

Astmi
Symbicort Turbuhaler má ávísa til meðferðar á astma á tvennan hátt:

a) Stundum er tveimur innöndunartækjum ávísað: Symbicort Turbuhaler og öðru
innöndunartæki með bráðalyfi.
• Þá er Symbicort Turbuhaler notað daglega. Það hjálpar til við að koma í veg fyrir að einkenni
astmans komi fram.
• Bráðalyfið er svo notað þegar astmaeinkenni koma fram og auðveldar það þá öndun.

b) Stundum er Symbicort Turbuhaler ávísað sem eina astmalyfinu til innöndunar.
• Þá er Symbicort Turbuhaler notað daglega. Það hjálpar til við að koma í veg fyrir að
astmaeinkenni komi fram.
• Ef astmaeinkenni koma fram er Symbicort Turbuhaler einnig notað til að auðvelda öndun og ef
samkomulag hefur verið gert við lækninn um að nota Symbicort Turbuhaler til að koma í veg
fyrir astmaeinkenni (til dæmis við áreynslu og vegna útsetningar fyrir ofnæmisvökum). Í þeim
tilvikum þarf ekki annað sérstakt bráðalyf.

Langvinn lungnateppa
Symbicort Turbuhaler má einnig nota til meðferðar á einkennum langvinnrar lungnateppu hjá
fullorðnum. Langvinn lungnateppa er langvinnur sjúkdómur í öndunarvegi og er oftast af völdum
reykinga.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Symbicort Turbuhaler inniheldur
Virku innihaldsefnin eru budesonid og formoterolfumarattvíhýdrat. Hver skammtur til innöndunar
inniheldur 160 míkrógrömm af budesonidi og 4,5 míkrógrömm af formoterolfumarattvíhýdrati.
Annað innihaldsefni er mjólkursykur (sem inniheldur mjólkurprótein).

Lýsing á útliti Symbicort Turbuhaler og pakkningastærðir
Symbicort Turbuhaler er innöndunartæki sem inniheldur lyfið. Innöndunarduftið er hvítt að lit.
Hvert Turbuhaler innöndunartæki inniheldur annaðhvort 30, 60 eða 120 skammta og er hvítt með
rauðu botnstykki. Botnstykkið er með töluna 6 í blindraletri til aðgreiningar frá öðrum AstraZeneca
innöndunarlyfjum.

Symbicort Turbuhaler fæst í pakkningum með 1 innöndunartæki sem inniheldur 30 skammta eða
pakkningum með 1, 2, 3, 10 eða 18 innöndunartækjum með 60 eða 120 skömmtum.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi: AstraZeneca A/S, Johanne Møllers Passage 1, 4., DK-1799 Kaupmannahöfn V,
Danmörk.

Framleiðandi: AstraZeneca AB, SE-151 36 Södertälje, Svíþjóð.

Umboð: Vistor hf., sími: 535 7000.

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Austurríki: Symbicort Turbohaler 160 μg/4.5 μg/inhalation; Belgía: Symbicort Turbohaler
160 μg/4.5 μg/inhalation; Búlgaría: Symbicort Turbuhaler 160 μg/4.5 μg/inhalation; Króatía:
Symbicort Turbuhaler 160 μg/4.5 μg/inhalation; Kýpur: Symbicort Turbuhaler
160 μg/4.5 μg/inhalation; Tékkland: Symbicort Turbuhaler 160 μg/4,5 μg/inhalation; Danmörk:
Symbicort Turbuhaler 160 μg/4.5 μg/inhalation; Eistland: Symbicort Turbuhaler, 160 μg/4.5 μg;
Finnland: Symbicort Turbuhaler 160 μg/4.5 μg/inhalation; Frakkland: Symbicort Turbuhaler
200 μg/6 μg/inhalation; Þýskaland: Symbicort Turbohaler 160 μg/4.5 μg/inhalation; Grikkland:
Symbicort Turbuhaler 160 μg/4.5 μg/inhalation; Ungverjaland: Symbicort Turbuhaler
160 μg/4.5 μg/inhalation; Ísland: Symbicort Turbuhaler 160 míkrógrömm/4,5 míkrógrömm/skammt;
Írland: Symbicort Turbohaler 200 μg/6 μg/inhalation; Ítalía: Symbicort 160 μg/4.5 μg/inhalation;
Lettland: Symbicort Turbuhaler 160 μg/4.5 μg/inhalation; Litháen: Symbicort Turbuhaler
160 μg/4.5 μg/inhalation; Luxemborg: Symbicort Turbohaler 160 μg/4.5 μg/inhalation; Malta:
Symbicort Turbohaler 200 μg/6 μg/inhalation; Holland: Symbicort Turbuhaler
200 μg/6 μg/inhalation; Noregur: Symbicort Turbuhaler 160 μg/4.5 μg/inhalation; Pólland:
Symbicort Turbuhaler 160 μg/4.5 μg/inhalation; Portúgal: Symbicort Turbohaler
160 μg/4.5 μg/inhalation; Rúmenía: Symbicort Turbuhaler 160 μg/4.5 μg/inhalation; Slóvakía:
Symbicort Turbuhaler 200 μg/6 μg/inhalation; Slóvenía: Symbicort Turbuhaler
160 μg/4.5 μg/inhalation; Spánn: Symbicort Turbuhaler 160 μg/4.5 μg/inhalation; Svíþjóð:
Symbicort Turbuhaler 160 μg/4.5 μg/inhalation; Bretland: Symbicort Turbohaler
200 μg/6 μg/inhalation.

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í desember 2023.