Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Symbicort mite Turbuhaler - Innöndunarduft
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Symbicort mite Turbuhaler - Innöndunarduft

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: R03AK07
ATC Heiti: Formoterol and budesonide
Norrænt Vörunúmer: 003325
Markaðsleyfishafi: AstraZeneca A/S
Skráningardagsetning: 01.08.2002
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Symbicort mite Turbuhaler er innöndunartæki sem notað er til að meðhöndla astma hjá fullorðnum,
unglingum og börnum 6 ára og eldri. Það inniheldur tvö mismunandi virk efni: budesonid og
formoterolfumarattvíhýdrat.

• Budesonid tilheyrir flokki lyfja sem kallast barksterar. Budesonid virkar þannig að það minnkar
og kemur í veg fyrir bólgur og þrota í lungum.
• Formoterolfumarattvíhýdrat tilheyrir flokki lyfja sem kallast langverkandi beta2-
adrenviðtakaörvar eða berkjuvíkkandi lyf. Það virkar þannig að það slakar á vöðvunum í
öndunarveginum og léttir með því öndunina.

Lyfið hentar ekki til meðferðar á alvarlegum astma. Unnt er að ávísa því til meðferðar á astma á
tvennan hátt:

a) Stundum er tveimur innöndunartækjum ávísað: Symbicort mite Turbuhaler og öðru
innöndunartæki með bráðalyfi.
• Þá er Symbicort mite Turbuhaler notað daglega. Það hjálpar til við að koma í veg fyrir að
einkenni astmans komi fram.
• Bráðalyfið er svo notað þegar astmaeinkenni koma fram og auðveldar það þá öndun.

b) Stundum er Symbicort mite Turbuhaler ávísað sem eina astmalyfinu til innöndunar.
• Þá er Symbicort mite Turbuhaler notað daglega. Það hjálpar til við að koma í veg fyrir að
astmaeinkenni komi fram.
• Ef astmaeinkenni koma fram er Symbicort mite Turbuhaler einnig notað til að auðvelda öndun.
Í þeim tilvikum þarf ekki annað sérstakt bráðalyf.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Symbicort mite Turbuhaler inniheldur
Virku innihaldsefnin eru budesonid og formoterolfumarattvíhýdrat. Hver skammtur til innöndunar
inniheldur 80 míkrógrömm af budesonidi og 4,5 míkrógrömm af formoterolfumarattvíhýdrati.
Annað innihaldsefni er mjólkursykur (sem inniheldur mjólkurprótein).

Lýsing á útliti Symbicort mite Turbuhaler og pakkningastærðir
Symbicort mite Turbuhaler er innöndunartæki sem inniheldur lyfið. Innöndunarduftið er hvítt að lit.
Hvert innöndunartæki inniheldur annaðhvort 60 eða 120 skammta og er hvítt með rauðu botnstykki.
Botnstykkið er með töluna 6 í blindraletri til aðgreiningar frá öðrum AstraZeneca innöndunarlyfjum.

Symbicort mite Turbuhaler fæst í pakkningum með 1, 2, 3, 10 eða 18 innöndunartækjum með 60 (eða
120) skömmtum.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi: AstraZeneca A/S, Johanne Møllers Passage 1, 4., DK-1799 Kaupmannahöfn V,
Danmörk.

Framleiðandi: AstraZenenca AB, SE-151 36 Södertälje, Svíþjóð.

Umboð: Vistor hf., sími: 535 7000.

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:

Land Heiti og styrkleiki
Búlgaría, Grikkland, Króatía, Kýpur,
Lettland, Litháen, Pólland, Rúmenía,
Slóvenía, Spánn, Tékkland
Symbicort Turbuhaler 80 µg/4,5 µg/inhalation
Danmörk, Ísland, Noregur, Svíþjóð,
Ungverjaland
Symbicort mite Turbuhaler
80 µg/4,5 µg/inhalation
Finnland Symbicort Turbuhaler mite
80 μg/4.5 μg/inhalation
Frakkland, Holland, Slóvakía Symbicort Turbuhaler 100 µg/6 µg/inhalation
Austurríki, Belgía, Lúxemburg,
Þýskaland
Symbicort mite Turbohaler
80 µg/4,5 µg/inhalation
Portúgal Symbicort Turbohaler 80 µg/4,5 µg/inhalation
Bretland, Írland, Malta Symbicort Turbohaler 100 µg/6 µg/inhalation
Ítalía Symbicort mite 80 µg/4,5 µg/inhalation
Eistland Symbicort Turbuhaler, 80 µg/4,5 µg

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í nóvember 2023.