Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Strepsils Cool - Munnsogstafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Strepsils Cool - Munnsogstafla

Lausasölulyf
ATC Flokkur: R02AA03
ATC Heiti: Dichlorobenzylalcohol
Norrænt Vörunúmer: 026569
Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare (Scandinavia) A/S
Skráningardagsetning: 01.09.2010
Magn
Strepsils Cool munnsogstöflur draga úr eymslum og hafa bakteríudrepandi verkun. Strepsils Cool er
notað við eymslum og ertingu í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldri en 12 ára.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan nokkurra daga.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Strepsils Cool inniheldur
- Virku innihaldsefnin eru: 2,4-tvíklórbensýlalkóhól og amýlmetakresól.
- Önnur innihaldsefni eru: Fljótandi súkrósi, fljótandi glúkósi (inniheldur súlfít og hveitisterkju
sem inniheldur glúten), levómentól, eucalyptusolía, xýlítól, cool mint bragðefni (inniheldur
própýlenglýkól), spearmint.

Lýsing á útliti Strepsils Cool og pakkningastærðir

Strepsils Cool eru glærar, kringlóttar munnsogstöflur merktar S á hvorri hlið.

Strepsils Cool er fáanlegt í þynnupakkningu með 10, 12, 16, 24 og 36 munnsogstöflum.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Reckitt Benckiser Healthcare (Scandinavia) A/S
Vandtårnsvej 83A
2860 Søborg
Danmörk

Framleiðandi
RB NL Brands B.V.
WTC Schiphol Airport
Schiphol Boulevard 207
1118 BH Schiphol
Holland

Umboð á Íslandi
Artasan ehf.
Suðurhrauni 12a
210 Garðabæ

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í janúar 2022.

Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef Lyfjastofnunar http://www.serlyfjaskra.is