Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Sporanox - Hart hylki
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Sporanox - Hart hylki

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J02AC02
ATC Heiti: Itraconazolum
Norrænt Vörunúmer: 153536
Markaðsleyfishafi: Janssen-Cilag AB
Skráningardagsetning: 01.04.1995
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Sporanox tilheyrir flokki lyfja sem nefnast „sveppalyf“ (lyf við sveppasýkingum). Þessi lyf eru notuð
til meðhöndlunar á og til að koma í veg fyrir að þú fáir sýkingar af völdum sveppa, gersveppir
meðtaldir.

Sporanox er lyf sem hemur m.a. sjúkdómsvaldandi gersveppi með því að koma í veg fyrir að þeir
myndi eðlilegan frumuvegg. Án eðlilegs frumuveggs drepst sveppurinn.

Sporanox er notað við sveppasýkingum í leggöngum, húð, nöglum og innri líffærum.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Sporanox hylki innihalda

- Virka innihaldsefnið er itraconazol.
- Önnur innihaldsefni eru: sykurkúlur (maíssterkja og súkrósi), hýprómellósi og makrógól.
Hylkisskelin inniheldur litarefni (erytrosin/E 127, indígókarmín/E 132, títandíoxíð/E 171) og
gelatínu.

Lýsing á útliti Sporanox hylkja og pakkningastærðir
Þynnupakkning með 4, 15 eða 28 hylkjum.

Sporanox hylkin eru með bláan ógegnsæjan efri hluta og bleikan gegnsæjan neðri hluta.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Jansen-Cilag AB
Box 4042
SE-169 04 Solna
Svíþjóð

Framleiðandi
Janssen-Cilag S.p.A., Via C. Janssen, 04100 Borgo San Michele, Latina, Ítalía.

Umboðsaðili á Íslandi
Vistor hf. Sími: 535 7000.

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í ágúst 2025.