Lyf fyrir menn

Spiron - Tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C03DA01
ATC Heiti: Spírónólaktón
Norrænt Vörunúmer: 410382
Markaðsleyfishafi: Orion Corporation
Skráningardagsetning: 01.09.2013
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Virkt innihaldsefni lyfsins, spírónólaktón, dregur úr of miklu magni af vökva í líkamanum með því að
auka útskilnað á þvagi. Það er ólíkt mörgum öðrum þvagræsilyfjum að því leyti að ekkert kalíum
tapast með þvaginu.
Lyfið er notað til meðhöndlunar:
• háþrýstings eða hjartabilunar, sem viðbótarmeðferð hjá sjúklingum sem ekki sýna fullnægjandi
svörun við annarri meðferð
• bjúgmyndun í tengslum við hjarta-, nýrna- og lifrarsjúkdóma, eða aðra sjúkdóma þegar önnur
meðferð hefur ekki borið árangur
• frumkomins aldósterónheilkennis (of mikil framleiðsla aldósteróns í nýrnahettunum).
Læknirinn getur hafa ávísað lyfinu til meðhöndlunar annarra sjúkdóma en minnst er á í þessum
fylgiseðli.
Lyfið á eingöngu að gefa börnum undir eftirliti barnalæknis.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Spiron inniheldur - Virka innihaldsefnið er spírónólaktón. Hver tafla inniheldur 25, 50 eða 100 mg af
spírónólaktóni.
- Önnur innihaldsefni eru laktósaeinhýdrat, maíssterkja, póvidón, pólýsorbat 80, piparmintuolía,
vatnsfrí kísilkvoða, magnesíumsterat.
Lýsing á útliti Spiron og pakkningastærðir
25 mg tafla: Hvít eða beinhvít, kringlótt, flöt tafla með skábrún og deiliskoru, 7 mm í þvermál,
auðkennd með ORN85.
50 mg tafla: Hvít eða beinhvít, kringlótt, flöt tafla með skábrún og deiliskoru, 9 mm í þvermál,
auðkennd með ORN213.
100 mg tafla: Hvít eða beinhvít, kringlótt, flöt tafla með skábrún og deiliskoru, 11 mm í þvermál,
auðkennd með ORN352.
Töflunni má skipta í jafna skammta.
Töflunum er pakkað í HDPE plastglös með loki.
Pakkningastærðir:
25 mg: 30, 50, 100 og 250 töflur
50 mg og 100 mg: 30, 50 og 100 töflur
Þynnupakkningar úr PVC/AL
25 mg, 50 mg og 100 mg: 30 og 60 töflur
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
Orion Corporation
Orionintie 1
FI-02200 Espoo
Finnland
Framleiðandi
Orion Corporation Orion Pharma
Orionintie 1
FI-02200 Espoo
Finnland
Orion Corporation Orion Pharma
Joensuunkatu 7
FI-24100 Salo
Finnland
Umboð á Íslandi:
Vistor hf. Sími: 535 7000
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í desember 2025.