Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Spectracillin - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Spectracillin - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J01CR02
ATC Heiti: amoxicillin and beta-lactamase inhibitor
Norrænt Vörunúmer: 030136
Markaðsleyfishafi: Williams & Halls ehf.
Skráningardagsetning: 01.01.2017
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Spectracillin er sýklalyf sem drepur bakteríur sem valda sýkingum. Það inniheldur tvö mismunandi lyf
sem kallast amoxicillín og klavúlansýra. Amoxicillín tilheyrir flokki lyfja sem kallast „penicillín“ en
stundum er verkun þeirra hindruð (eru gerð óvirk). Hitt virka efnið (klavúlansýra) kemur í veg fyrir að
þetta gerist.

Spectracilliln er notað hjá fullorðnum og börnum við eftirtöldum sýkingum:

• Miðeyrna- og skútabólgu
• Öndunarfærasýkingum
• Þvagfærasýkingum
• Sýkingum í húð og mjúkvefjum, þ.m.t. sýkingum í tönnum
• Sýkingum í beinum og liðum.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Spectracillin inniheldur
• Virku innihaldsefnin eru amoxicillín og klavúlansýra.
• Hver tafla inniheldur amoxicillínþríhýdrat sem samsvarar 500 mg af amoxicillíni og kalíum-
klavúlanat sem samsvarar 125 mg klavúlansýru.
• Önnur innihaldsefni eru:
Töflukjarni: Örkristallaður sellulósi (E460), krospóvidon, Teg. A (E1202), natríum
kroskarmellósa (E468), vatnsfrí kísilkvoða (E551), magnesíumsterat (E470b)
Filmuhúð: Bútýleraður metakrýlat kópólýmer, títantvíoxíð (E171), talkúm (E553b), makrógól

Lýsing á útliti Spectracillin og pakkningastærðir
Hvít eða næstum hvít aflöng filmuhúðuð tafla með deiliskoru.

OPA/Ál/PVC-álþynnupakkningar:
//////////// filmuhúðaðar töflur.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Williams & Halls ehf.
Reykjavíkurvegi 62
220 Hafnarfjörður
Ísland

Framleiðandi
PenCef Pharma GmbH
Breitenbachstrasse 13
13509 Berlin
Þýskaland


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í maí 2023.

Ráðleggingar/fræðsla um sýklalyfjanotkun

Sýklalyf eru notuð til meðferðar við bakteríusýkingum. Þau hafa engin áhrif á sýkingar sem orsakast
af veirum.

Stundum getur verið að sýking af völdum baktería svari ekki meðferð með sýklalyfi. Ein algengasta
ástæðan fyrir því að þetta gerist er sú að bakterían sem veldur sýkingunni er ónæm fyrir sýklalyfinu
sem notað er. Þetta þýðir að bakteríurnar halda áfram að lifa og geta jafnvel fjölgað sér þrátt fyrir
sýklalyfið.

Bakteríur geta orðið ónæmar fyrir sýklalyfjum af mörgum ástæðum. Varkárni við notkun sýklalyfja
getur hjálpað til við að draga úr líkunum á því að bakteríur verði ónæmar fyrir þeim.

Þegar læknirinn ávísar meðferð með sýklalyfi er það eingöngu gert til þess að meðhöndla þann
sjúkdóm sem þú ert með á þeim tíma. Ef fylgt er eftirfarandi ráðleggingum hjálpar það til við að koma
í veg fyrir myndun ónæmra baktería sem geta valdið því að sýklalyfið hætti að virka.

1. Mjög mikilvægt er að þú takir sýklalyfið í réttum skammti, á réttum tíma og í réttan
dagafjölda. Lestu leiðbeiningarnar á miðanum og ef þú skilur ekki eitthvað skaltu biðja
lækninn eða lyfjafræðing um að útskýra.
2. Ekki taka sýklalyf nema að því hafi verið ávísað sérstaklega fyrir þig og notaðu það
eingöngu til meðhöndlunar á þeirri sýkingu sem því var ávísað fyrir.
3. Ekki taka sýklalyf sem hefur verið ávísað fyrir aðra, jafnvel þótt þeir hafi verið með
sýkingu sem var svipuð þinni.
4. Ekki gefa öðru fólki sýklalyf sem var ávísað fyrir þig.
5. Ef eitthvað er eftir af sýklalyfinu þegar meðferðinni sem læknirinn ráðlagði er lokið,
skaltu fara með það sem eftir er í apótekið til förgunar á viðeigandi hátt.