Lyf fyrir menn

Soluvit - Innrennslisstofn, lausn
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: B05XC
ATC Heiti: Vítamín
Norrænt Vörunúmer: 191254
Markaðsleyfishafi: Fresenius Kabi AB
Skráningardagsetning: 01.10.1985
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Soluvit er frostþurrkuð, sæfð blanda af vatnsuppleysanlegum vítamínum.
Soluvit er gefið sem uppbótarnæring í bláæð til að uppfylla daglega þörf fyrir vatnsuppleysanleg
vítamín.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Soluvit er gefið sem uppbótarnæring í bláæð til að uppfylla daglega þörf fyrir vatnsuppleysanleg
vítamín.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Soluvit inniheldur - Virku innihaldsefnin:
1 glas inniheldur:
Tíamín 2,5 mg sem tíamínnítrat
Ríbóflavín 3,6 mg sem ríbóflavínnatríumfosfat
Nikótínamíð 40 mg
Pýridoxín 4,0 mg sem pýridoxínhýdróklóríð
Pantótensýra 15 mg sem natríumpantótenat
Askorbínsýra 100 mg sem natríumaskorbat
Fólínsýra 0,4 mg
Cýanokóbalamín 0,005 mg
Bíótín 0,06 mg
- Önnur innihaldsefni eru: glýsín, tvínatríumedetat, metýlparahýdroxýbenzóat (E218).
Lýsing á útliti Soluvit og pakkningastærðir
Útlit:
Soluvit er frostþurrkað, sæft, gult duft.
Pakkningastærðir:
10 x 1 hettuglas
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Fresenius Kabi AB
Rapsgatan 7
751 74 Uppsölum
Svíþjóð
Umboð á Íslandi
Vistor hf.
s. 535 7000
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í júlí 2019.
<------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------>
Eftirfarandi upplýsingar eru einungis ætlaðar heilbrigðisstarfsmönnum:
Soluvit á að leysa upp fyrir notkun.
Öll blöndun á að fara fram að viðhafðri smitgát.
Fullorðnir og börn 11 ára og eldri:
Innihald hettuglassins er leyst upp með því að bæta í það 10 ml af einhverri af eftirtöldum lausnum:
1 Vitalipid Adult eða
2 Intralipid eða
3 Sæft vatn fyrir stungulyf eða
4 Glúkósa innrennslislyf, lausn (5%-50%)
Soluvit má einnig blanda við næringarlausnir (TPN) í plastpoka.
Börn yngri en 11 ára:
Innihald hettuglassins er leyst upp með því að bæta í það 10 ml af einhverri af eftirtöldum lausnum:
1 Intralipid 100 mg/ml eða 200 mg/ml eða
2 Sæft vatn fyrir stungulyf eða
3 Glúkósa innrennslislyf, lausn (5%-50%)
4 Vitalipid Infant (börn sem vega meira en 10 kg)
Börnum sem vega minna en 10 kg skal gefa 1 ml af uppleystri blöndu 1, 2 eða 3 fyrir hvert kg
líkamsþyngdar á dag.
Börn sem vega meira en 10 kg skal gefa 10 ml (eitt hettuglas) á dag af einhverri af þessum 4 blöndum.
Blöndu 4 má ekki gefa börnum sem vega minna en 10 kg meðal annars vegna mismunar á skömmtum
Soluvit og Vitalipid Infant.
Soluvit má einnig blanda við næringarlausnir (TPN) í plastpoka fyrir börn.
Uppleyst Soluvit skal blanda við innrennslisvökvann klukkustund áður en innrennsli hefst og
innrennsli skal lokið á innan við 24 tímum.
Ekki skal bæta lausnum sem innihalda Soluvit út í önnur lyf vegna hættu á ósamrýmanleika.
Upplýsingar um samrýmanleika með öðrum lyfjum og geymsluskilyrði mismunandi blanda eru veittar
ef óskað er eftir þeim.
Farga skal öllum lyfjaleifum og/eða úrgangi í samræmi við gildandi reglur.