Lyf fyrir menn

Sínex - Saft
Lausasölulyf
ATC Flokkur: R05CB02
ATC Heiti: Bromhexinum
Norrænt Vörunúmer: 180949
Markaðsleyfishafi: Laboratoria Qualiphar
Skráningardagsetning: 01.02.2024
Magn
Sínex tilheyrir flokki lyfja sem draga úr seigju slíms í öndunarvegi, nefi og berkjum.
Sínex er notað til meðhöndlunar á sjúkdómum í berkjum sem orsakast af seytingu seigfljótandi slíms:
bráð og langvinn berkjubólga, barkabólga og barka- og berkjubólga (tracheobronchitis), langvinnir
sjúkdómar í lungum og berkjum, bráð og langvinn bólga í nefskútum (skútabólga).
Sínex inniheldur engan sykur og hentar því til notkunar hjá sykursjúkum.
Þú verður að tala við lækni ef þér líður ekki betur eða ef þér líður verr eftir 4 til 5 daga.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Sínex inniheldur - Virka innihaldsefnið er: brómhexín hýdróklóríð 5 mg/5 ml.
- Önnur innihaldsefni eru: vínsýra - sorbitóllausn 70% (sem kristallast) – súkralósi - methýl
parahýdroxýbenzóat - própýl parahýdroxýbenzóat – própýlenglýkól – hindberjabragðefni -
hreinsað vatn.
- Sjá kafla 2, „Sínex inniheldur sorbitól (E420), própýlenglýkól (E1520), metýl
parahýdroxýbensóat (E218), própýl parahýdroxýbensóat (E216) og etanól (E1510)“.
Hindberjabragðefnið inniheldur etanól (E1510).
Lýsing á útliti Sínex og pakkningastærðir
Sínex er saft.
Glerglas með 180 ml af saft með barnheldu pólýprópýlen eða pólýprópýlen/pólýetýlen loki með
pólýetýlen innsigli ásamt 25 eða 30 ml mælibikar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Laboratoria QUALIPHAR N.V./S.A.
Rijksweg 9
2880 Bornem
Belgía
Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið
Alvogen ehf. Sími: 522 2900 Netfang: info@alvogen.is
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2024.