Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Sildenafil Medical Valley - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Sildenafil Medical Valley - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: G04BE03
ATC Heiti: Sildenafilum
Norrænt Vörunúmer: 052210
Markaðsleyfishafi: Medical Valley Invest AB
Skráningardagsetning: 01.11.2020
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Sildenafil Medical Valley inniheldur virka efnið síldenafíl, sem tilheyrir flokki lyfja, sem nefndur er
fosfótvíesterasahemlar af gerð 5 (PDE5). Það verkar með því að slaka á æðum í getnaðarlim þannig að
blóð geti streymt inn í liminn við kynferðislega örvun. Sildenafil Medical Valley hjálpar einungis til
við að ná stinningu sé kynferðisleg örvun fyrir hendi. Sildenafil Medical Valley er ætlað fullorðnum
karlmönnum með ristruflanir, einnig þekkt sem getuleysi, en það er þegar körlum annaðhvort rís ekki
hold eða holdris helst ekki nógu lengi til þess að þeir geti haft samfarir.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Sildenafil Medical Valley inniheldur

- Virka innihaldsefnið er síldenafíl. Hver tafla inniheldur 100 mg af síldenafíli (sem sítratsalt).
- Önnur innihaldsefni:
- Töflukjarni: kalsíumhýdrógenfosfat (tvíhýdrat), örkristallaður sellulósi, magnesíumsterat,
vatnsfrí kísilkvoða, kroskarmellósanatríum.
- Filmuhúð: hýprómellósi, títandíoxíð (E171), makrógól 6000, talkúm og indigótín karmín-
ál-litarefni (E132).

Lýsing á útliti Sildenafil Medical Valley og pakkningastærðir

Sildenafil Medical Valley 100 mg filmuhúðaðar töflur eru bláar, ílangar og auðkenndar með „100“.

Sildenafil Medical Valley 100 mg filmuhúðaðar töflur í öskju með 4, 8 eða 12 töflum.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi:

Medical Valley Invest AB
Brädgårdsvägen 28
SE-236 32 Höllviken
Svíþjóð

Framleiðandi:

LABORATORIOS NORMON, S.A.
Ronda de Valdecarrizo, 6
28760 Tres Cantos – Madrid, Spánn

LABORATORIOS LICONSA, S.A.
Avenida Miralcampo, 7. Polígono Industrial Miralcampo
19200 Azuqueca de Henares
Guadalajara – Spánn

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:

Austurríki: Silchemo
Belgía: Silchemo
Danmörk: Sildenafil Medical Valley
Holland: Sildenafil Xiromed 25 mg/50 mg/100 mg, filmomhulde tabletten
Pólland: Sildenafil Medical Valley /100 mg, tabletki powlekane

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í október 2023.