Lyf fyrir menn

Sertralin WH - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N06AB06
ATC Heiti: Sertralinum
Norrænt Vörunúmer: 130001
Markaðsleyfishafi: Williams & Halls ehf
Skráningardagsetning: 01.08.2019
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Sertralin WH inniheldur virka efnið sertralín. Sertralín tilheyrir flokki lyfja sem kallast sérhæfðir
serótónínendurupptökuhemlar (SSRI-lyf); þessi lyf eru notuð til meðferðar við þunglyndi og/eða
kvíðaröskunum.
Sertralin WH er notað við meðferð á:
• Þunglyndi og til að fyrirbyggja endurkomu þunglyndis (hjá fullorðnum).
• Félagslegri kvíðaröskun (hjá fullorðnum).
• Áfallastreituröskun (PTSD) (hjá fullorðnum).
• Felmtursröskun (ofsahræðsla) (hjá fullorðnum).
• Þráhyggju-árátturöskun (hjá fullorðnum, börnum og unglingum á aldrinum 6-17 ára).
Þunglyndi er sjúkdómur sem lýsir sér með einkennum eins og depurð, erfiðleikum með svefn og með
að njóta lífsins eins og áður.
Þráhyggju-árátturöskun og felmtursröskun eru sjúkdómar sem tengjast kvíða, með einkennum eins og
að vera stöðugt áreittur af þrálátum hugsunum (þráhyggja) sem láta þig endurtaka ákveðnar athafnir
(árátta).
Áfallastreituröskun er ástand sem getur komið í kjölfar erfiðrar andlegrar lífsreynslu og hefur sum
einkenni sem svipar til þunglyndis og kvíða. Félagsleg kvíðaröskun (félagsfælni) er sjúkdómur sem
tengist kvíða. Hún einkennist af miklum kvíða eða vanlíðan við félagslegar aðstæður (t.d. við að tala
við ókunnugt fólk, tala fyrir framan stóran hóp fólks, borða eða drekka fyrir framan aðra eða hafa
áhyggjur af því að verða sér til skammar).
Læknirinn hefur ákveðið að lyfið henti til meðferðar við sjúkdómnum þínum.
Þú skalt spyrja lækninn ef þú ert ekki viss um hvers vegna þér var ávísað Sertralin WH.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Sertralin WH inniheldur Virka innihaldsefnið er sertralín
Hver filmuhúðuð tafla af Sertralin WH inniheldur jafngildi 50 mg eða 100 mg af sertralíni (sem
hýdróklóríð)
Önnur innihaldsefni eru:
Kalsíumvetnisfosfattvíhýdrat, örkristallaður sellulósi 102, natríumsterkjuglýkólat, vatnsfrí kísilkvoða,
magnesíumsterat, pólývínýlalkóhól, títantvíoxíð (e171), makrógól 300, talkúm
Lýsing á útliti Sertralin WH og pakkningastærðir
Sertralin WH eru filmuhúðaðar töflur í þynnupakkningum.
Sertralin WH er fáanlegt í pakkningum sem innihalda 10, 14, 28, 30, 56, 60 og 100 töflur, í 50 mg og
100 mg skammtastærðum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Williams & Halls ehf
Reykjavíkurvegi 62
220 Hafnarfjörður
Ísland
Framleiðandi
Atlantic Pharma – Produções Farmacêuticas, S.A.
Rua da Tapada Grande nº 2, Abrunheira
2710 – 228 Sintra
Portúgal
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Portúgal Sertralina Farmoz
Ísland Sertralin WH
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í nóvember 2025.