Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Seroxat - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
Seroxat-image

Seroxat - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N06AB05
ATC Heiti: Paroxetinum
Norrænt Vörunúmer: 038448
Markaðsleyfishafi: GlaxoSmithKline Pharma A/S
Skráningardagsetning: 01.04.1993
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Seroxat inniheldur

Virka efnið er paroxetín (20 mg), sem paroxetínhýdróklóríðhemihýdrat.
- Önnur innihaldsefni eru:
Töflukjarni: Tvíbasískt kalsíumfosfattvíhýdrat (E341), magnesíumsterat (E470b) og
natríumsterkjuglýkólat (gerð A).
Filmuhúð: Hýprómellósi (E464), títantvíoxíð (E171), makrógól 400, polýsorbat 80 (E433).

Lýsing á útliti Seroxat og pakkningastærðir

Seroxat 20 mg filmuhúðaðar töflur eru hvítar, sporöskjulaga töflur, merktar „20“ eða „Seroxat 20“ á
annarri hlið og með deilistrik á hinni hliðinni. Hver þynnupakkning með barnaöryggi inniheldur 50 x 1
töflu eða 4, 10, 14, 20, 28, 30, 50, 56, 60, 98, 100, 250 eða 500 töflur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi:
GlaxoSmithKline Pharma A/S
Delta Park 37
2665 Vallensbæk Strand
Danmörk

Framleiðandi:
Delpharm Poznań Spółka Akcyjna
ul. Grunwaldzka 189
60-322 Poznan
Pólland

Umboð á Íslandi
Vistor hf., sími: 535-7000


Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:

Seroxat 20 mg filmuhúðaðar töflur:
Austurríki, Belgía, Kýpur, Tékkland, Danmörk, Eistland, Finnland, Þýskaland, Grikkland, Ísland,
Írland, Ítalía, Lettland, Litháen, Lúxemborg, Malta, Holland, Noregur, Pólland, Portúgal, Slóvakía,
Slóvenía, Spánn, Svíþjóð.

Deroxat: Frakkland.

Það gæti reynst þér hjálplegt að hafa samband við sjálfshjálparhóp eða sjúklingasamtök til þess að
fræðast meira um sjúkdóm þinn. Læknirinn getur gefið þér nánari upplýsingar.


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í júní 2025.

Ítarlegar upplýsingar um þetta lyf eru birtar á http://www.serlyfjaskra.is.