Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Septabene eucalyptus - Munnsogstafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Septabene eucalyptus - Munnsogstafla

Lausasölulyf
ATC Flokkur: R02AX03
ATC Heiti: benzydamine
Norrænt Vörunúmer: 484901
Markaðsleyfishafi: Krka, d.d., Novo mesto
Skráningardagsetning: 01.01.2025
Magn
Septabene eucalyptus inniheldur virku efnin benzydaminehydrochloride og cetylpyridiniumchloride.
Septabene eucalyptus munnsogstafla er bólgueyðandi, verkjastillandi og sótthreinsandi lyf til
staðbundinnar notkunar í munnhol. Septabene eucalyptus sótthreinsar munn og háls og dregur úr
bólgueinkennum í hálsi, svo sem verk, roða, þrota, hita og skertri virkni.

Septabene eucalyptus er notað handa fullorðnum, unglingum og börnum eldri en 6 ára, til meðferðar á
einkennum hálsbólgu sem tengjast vægum sýkingum í munni og hálsi.

Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 3 daga.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Septabene eucalyptus inniheldur

- Virku innihaldsefnin eru benzydaminehydrochloride og cetylpyridiniumchloride. Hver
munnsogstafla inniheldur 3 mg af benzydaminehydrochloride og 1 mg af
cetylpyridiniumchloride.
- Önnur innihaldsefni eru eucalyptusolía, levómentól, sítrónusýra (E330), súkralósi (E955),
ísómalt (E953), briljant blátt FCF (E133). Sjá kafla 2 „Septabene eucalyptus inniheldur ísómalt
(E953).

Lýsing á útliti Septabene eucalyptus og pakkningastærðir
Kringlóttar munnsogstöflur með skáskornum brúnum og hrjúfu yfirborði, ljósbláar eða bláar á lit.
Hugsanlegt er að hvítir blettir, misjöfn litun eða loftbólur séu í töflumassanum og að lítil skörð séu í
töflubrúnunum. Þvermál munnsogstöflu: 18 mm – 19 mm, þykkt: 7 mm – 8 mm.

Septabene eucalyptus er fáanlegt í öskjum með 8, 16, 24, 32 eða 40 munnsogstöflum í þynnum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
KRKA, d.d., Novo mesto
Šmarješka cesta 6
8501 Novo mesto
Slóvenía

Framleiðandi
KRKA, d.d., Novo mesto, Šmarješka cesta 6, 8501 Novo mesto, Slóvenía
TAD Pharma GmbH, Heinz-Lohmann-Strase 5, 27472 Cuxhaven, Þýskaland

Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið

LYFIS ehf.
Sími: 534 3500
Netfang: lyfis@lyfis.is

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í maí 2024.


Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef Lyfjastofnunar, www.serlyfjaskra.is.