Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Septabene citron og honning - Munnsogstafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Septabene citron og honning - Munnsogstafla

Lausasölulyf
ATC Flokkur: R02AX03
ATC Heiti: benzydamine
Norrænt Vörunúmer: 419733
Markaðsleyfishafi: Krka, d.d., Novo mesto
Skráningardagsetning: 01.02.2022
Magn
Septabene citron og honning inniheldur virku efnin benzydaminehydrochloride og
cetylpyridiniumchloride.
Septabene citron og honning munnsogstafla er bólgueyðandi, verkjastillandi og sótthreinsandi lyf til
staðbundinnar notkunar í munnhol. Septabene citron og honning sótthreinsar munn og háls og dregur
úr bólgueinkennum í hálsi, svo sem verk, roða, þrota, hita og skertri virkni.

Septabene citron og honning er notað handa fullorðnum, unglingum og börnum eldri en 6 ára, til
meðferðar á einkennum hálsbólgu sem tengjast vægum sýkingum í munni og hálsi.

Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 3 daga.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Septabene citron og honning inniheldur

- Virku innihaldsefnin eru benzydaminehydrochloride og cetylpyridiniumchloride. Hver
munnsogstafla inniheldur 3 mg af benzydaminehydrochloride og 1 mg af
cetylpyridiniumchloride.
- Önnur innihaldsefni eru piparmintuolía, levómentól, súkralósi (E955), sítrónusýra (E330),
ísómalt (E953), sítrónubragðefni, hunangsbragðefni, kúrkúmín (E100) (inniheldur
natríumbensóat (E211)). Sjá kafla 2 „Septabene citron og honning inniheldur ísómalt (E953),
natríumbensóat (E211) og natríum“.

Lýsing á útliti Septabene citron og honning og pakkningastærðir
Kringlóttar munnsogstöflur með skáskornum brúnum og hrjúfu yfirborði, ljósgular eða gular á lit.
Hugsanlegt er að hvítir blettir, misjöfn litun eða loftbólur séu í töflumassanum og að lítil skörð séu í
töflubrúnunum. Þvermál munnsogstöflu: 18 mm – 19 mm, þykkt: 7 mm – 8 mm.

Septabene citron og honning er fáanlegt í öskjum með 8, 16, 24, 32 eða 40 munnsogstöflum í þynnum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
KRKA, d.d., Novo mesto
Šmarješka cesta 6
8501 Novo mesto
Slóvenía

Framleiðandi
KRKA, d.d., Novo mesto, Šmarješka cesta 6, 8501 Novo mesto, Slóvenía
TAD Pharma GmbH, Heinz-Lohmann-Strase 5, 27472 Cuxhaven, Þýskaland

Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið

LYFIS ehf.
Sími: 534 3500
Netfang: lyfis@lyfis.is

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í júní 2021.