Lyf fyrir menn

Selexid - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J01CA08
ATC Heiti: Pivmecillinamum
Norrænt Vörunúmer: 054321
Markaðsleyfishafi: Karo Pharma AB
Skráningardagsetning: 01.04.2012
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Selexid er sýklalyf í flokki penicillína. Selexid verkar gegn bakteríum sem valda sýkingum.
Selexid er notað til að meðhöndla:
- Sýkingar í þvagblöðru eða þvagleiðurum frá nýrum (þvagfærasýkingar)
- Sýkingar af völdum bakteríu sem nefnist salmonella
Selexid er notað til að meðhöndla:
- Sýkingar í þvagblöðru eða þvagleiðurum frá nýrum (þvagfærasýkingar)
- Sýkingar af völdum bakteríu sem nefnist salmonella
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Selexid inniheldur - Virka innihaldsefnið er pivmecillínamhýdróklóríð.
Hver Selexid 200 mg filmuhúðuð tafla inniheldur 200 mg af pivmecillinamhýdróklóríði.
Hver Selexid 400 mg filmuhúðuð tafla inniheldur 400 mg af pivmecillinamhýdróklóríði.
- Önnur innihaldsefni eru: örkristallaður sellulósi, hýdroxýlprópýlsellulósi, hýprómellósi,
magnesíumsterat, símetikonfleyti 30% og samtengt paraffin.
Lýsing á útlit Selexid og pakkningastærðir
200 mg:
Selexid er hvít, kringlótt, kúpt, filmuhúðuð tafla. Taflan er merkt með 137 á annarri hliðinni og
assýrísku ljóni á hinni hliðinni.
400 mg:
Selexid er hvít, hylkislaga, filmuhúðuð tafla.
Pakkningastærðir:
Selexid 200 mg: 20, 30, 40 og 100 töflur.
Selexid 400 mg: 10, 15 og 20 töflur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Karo Pharma AB
Box 16184
103 24 Stockholm
Svíþjóð
Framleiðandi
Recipharm Strängnäs AB
Mariefredsvägen 35
S-645 41 Strängnäs
Svíþjóð
Hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa á hverjum stað ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið
Alvogen ehf.
Sími: 522 2900
Netfang: info@alvogen.is
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í mars 2024.