Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Sefitude - Húðuð tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Sefitude - Húðuð tafla

Lausasölulyf
ATC Flokkur: N05CM09
ATC Heiti: Valerianae radix
Norrænt Vörunúmer: 537873
Markaðsleyfishafi: Florealis ehf.
Skráningardagsetning: 01.06.2018
Magn
Sefitude er jurtalyf sem inniheldur þurran útdrátt af garðabrúðurót.

Lyfið er notað til að draga úr vægum kvíða og svefntruflunum hjá fullorðnum og ungmennum eldri en
12 ára.

Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 14 daga.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Sefitude inniheldur

- Virka innihaldsefnið er þurrkaður garðabrúðurótarútdráttur.

Hver tafla inniheldur 445 mg af útdrætti (sem þurr útdráttur) af Valeriana officinalis L., radix
(garðabrúðurót). Leysir til útdráttar: etanól 70% (V/V).
Við framleiðslu á hverri töflu eru notuð 1335 – 2670 mg af þurrkaðri garðabrúðurót.

- Önnur innihaldsefni eru maltódextrín; vatnsfrí kísilkvoða; örkristallaður sellulósi;
magnesíumsterat; vötnuð sílikonkvoða; talkúm; súkrósi; kalsíumkarbónat; akasía, úðaþurrkuð;
títantvíoxíð (E171); skellakk; kaólín, þungt; laxerolía, hreinsuð; makrógól 6000.


Lýsing á útliti Sefitude og pakkningastærðir
Kringlóttar, hvítar, kúptar, húðaðar töflur, 11.5 – 13 mm í þvermál.

Töflunum er pakkað í PVC/PVdC-álþynnur.
Lyfið kemur í 30, 45 og 60 stykkja pakkningum. Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu
markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Florealis ehf.
Síðumúla 25
108 Reykjavík
Ísland

Tölvupóstfang: info@florealis.com

Framleiðandi
Wiewelhove GmbH
Dörnebrink 19
D-49479 Ibbenbüren
Þýskaland

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í janúar 2019.