Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Rosuvastatin Xiromed - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
Rosuvastatin Xiromed-image

Rosuvastatin Xiromed - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C10AA07
ATC Heiti: Rosuvastatinum
Norrænt Vörunúmer: 122231
Markaðsleyfishafi: Medical Valley Invest AB
Skráningardagsetning: 01.12.2020
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Rosuvastatin Xiromed tilheyrir flokki lyfja sem kallast statín.

Þér hefur verið ávísað lyfinu Rosuvastatin Xiromed vegna þess að:

• Þú ert með hátt kólesterólgildi. Það þýðir að þú ert í hættu á að fá hjartaáfall eða heilaslag.
Rosuvastatin Xiromed er notað hjá fullorðnum, unglingum og börnum 6 ára eða eldri til að
meðhöndla hátt kólesteról.

Þér hefur verið ráðlagt að taka statín vegna þess að breytingar á mataræði og aukin líkamsþjálfun hafa
ekki nægt til þess að leiðrétta kólesterólgildin. Þú skalt halda fitusnauðu mataræði og líkamsþjálfun
áfram á meðan Rosuvastatin Xiromed er notað.

Eða

• Þú ert með aðra áhættuþætti sem auka líkurnar á því að þú fáir hjartaáfall, heilaslag eða tengda
heilsufarskvilla.
Sjúkdómur sem kallast æðakölkun getur orsakað hjartaáfall, heilaslag eða önnur hjarta- og
æðavandamál. Æðakölkun er af völdum uppsöfnunar fitu í æðum.

Hvers vegna er mikilvægt að halda áfram að nota Rosuvastatin Xiromed?

Rosuvastatin Xiromed er notað til að leiðrétta gildi fituefna í blóði sem kallast lípíð, en algengast
þeirra er kólesteról.
Mismunandi gerðir kólesteróls finnast í blóði – „slæmt“ kólesteról (LDL-kólesteról) og „gott“
kólesteról (HDL-kólesteról).
-Rosuvastatin Xiromed getur dregið úr magni „slæma“ kólesterólsins og aukið magn „góða“
kólesterólsins.

- Það verkar með því að hjálpa til við að stöðva myndun „slæms“ kólesteróls í líkamanum. Það
eykur einnig getu líkamans til þess að losa það úr blóðinu.

Hjá flestum hefur hátt kólesteról engin áhrif á líðan þar sem það veldur ekki einkennum. Ef það er
ekki meðhöndlað geta fituefnin safnast fyrir inn í æðaveggjunum og valdið þrengingu þar.

Stundum stíflast þessar þröngu æðar og þar með er dregið úr blóðflæði til hjarta eða heila sem getur
leitt til hjartaáfalls eða heilaslags. Ef gildi kólesteróls lækka má draga úr hættunni á hjartaáfalli,
heilaslagi eða tengdum heilsufarskvillum.

Nauðsynlegt er að halda áfram að nota Rosuvastatin Xiromed, jafnvel þótt kólesterólgildið sé orðið
eðlilegt, því það kemur í veg fyrir að kólesterólgildin hækki á ný og að fituefni safnist upp. Hins
vegar skaltu hætta að nota lyfið ef læknirinn segir þér að gera það eða ef þú verður þunguð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Rosuvastatin Xiromed inniheldur

- Virka innihaldsefnið er rosuvastatin.

Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 5 mg, 10 mg, 20 mg eða 40 mg rosuvastatin (sem
rosuvastatinkalsíum).
- Önnur innihaldsefni eru: Örkristölluð sellulósa, vatnsfrí kísilkvoða, krospóvidon, laktósa-
einhýdrat, magnesíumsterat.

Töfluhúðin inniheldur:

Makrógól, títantvíoxíð (E171), talkúm, glýseról, pólý(vínýlalkóhól) vatnsrofið að hluta
Járnoxíð, gult (E172) (eingöngu 5 mg töflur)
Járnoxíð, rautt (E172) (10 mg, 20 mg og 40 mg töflur)

Lýsing á útliti Rosuvastatin Xiromed og pakkningastærðir

Rosuvastatin Xiromed 5 mg filmuhúðaðar töflur: Gul, kringlótt, tvíkúpt, húðuð tafla, merkt 'ROS' fyrir
ofan '5' á annarri hliðinni, þvermál 7 mm.

Rosuvastatin Xiromed 10 mg filmuhúðaðar töflur: Bleik, kringlótt, tvíkúpt, húðuð tafla, merkt 'ROS'
fyrir ofan '10' á annarri hliðinni, þvermál 7 mm.

Rosuvastatin Xiromed 20 mg filmuhúðaðar töflur: Bleik, kringlótt, tvíkúpt, húðuð tafla, merkt 'ROS'
fyrir ofan '20' á annarri hliðinni, þvermál 9 mm.

Rosuvastatin Xiromed 40 mg filmuhúðaðar töflur: Bleik, sporöskjulaga, tvíkúpt, húðuð tafla, merkt
'ROS' á annarri hliðinni og '40' á hinni hliðinni, 6,8 x 11,4 mm á stærð.

Töflunum er pakkað í OPA-ál-PVC/álþynnupakkningar.

Öskjur innihalda 7, 14, 15, 20, 28, 30, 42, 50, 56, 60, 84, 90, 98 og 100 filmuhúðaðar töflur.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Medical Valley Invest AB
Brädgårdsvägen 28
236 32, Höllviken
Svíþjóð

Framleiðandi
Laboratorios Liconsa, S.A.
Polígono Industrial Miralcampo. Avda. Miralcampo, 7
19200 Azuqueca de Henares (Guadalajara)
Spánn

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:

Danmörk Rosval
Rúmenía Rosval 5 mg comprimate filmate
Rosval 10 mg comprimate filmate
Rosval 20 mg comprimate filmate
Rosval 40 mg comprimate filmate
Grikkland EXTRATOR-S
Tékkland Rosuvastatin PharmaSwiss
Finnland Rosuvastatin Xiromed 5 mg Tabletti, kalvopäällysteinen
Rosuvastatin Xiromed 10 mg Tabletti, kalvopäällysteinen
Rosuvastatin Xiromed 20 mg Tabletti, kalvopäällysteinen
Bretland Rosuvastatin 5 mg film-coated tablets
Rosuvastatin 10 mg film coated tablets
Rosuvastatin 20 mg film coated tablets
Rosuvastatin 40 mg film-coated tablets
Ungverjaland Rosuvastatin PharmaSwiss 5 mg filmtabletta
Rosuvastatin PharmaSwiss 10 mg filmtabletta
Rosuvastatin PharmaSwiss 20 mg filmtabletta
Rosuvastatin PharmaSwiss 40 mg filmtabletta
Írland Rosuvastatin Pinewood 5 mg film-coated tablets
Rosuvastatin Pinewood 10 mg film-coated tablets
Rosuvastatin Pinewood 20 mg film coated tablets
Rosuvastatin Pinewood 40 mg film-coated tablets
Ísland Rosuvastatin Xiromed 5 mg Filmuhúðuð tafla
Rosuvastatin Xiromed 10 mg Filmuhúðuð tafla
Rosuvastatin Xiromed 20 mg Filmuhúðuð tafla
Rosuvastatin Xiromed 40 mg Filmuhúðuð tafla
Holland Rosuvastatine Xiromed 5 mg, filmomhulde tabletten
Rosuvastatine Xiromed 10 mg, filmomhulde tabletten
Rosuvastatine Xiromed 20 mg, filmomhulde tabletten
Rosuvastatine Xiromed 40 mg, filmomhulde tabletten
Noregur Rosuvastatin Xiromed
Pólland Rosuvastatin PharmaSwiss
Svíþjóð Rosuvastatin Xiromed 5 mg Filmdragerad tablett
Rosuvastatin Xiromed 10 mg Filmdragerad tablett
Rosuvastatin Xiromed 20 mg Filmdragerad tablett
Rosuvastatin Xiromed 40 mg Filmdragerad tablett

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í október 2024.