Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Rosazol - Krem
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Rosazol - Krem

Lausasölulyf
ATC Flokkur: D06BX01
ATC Heiti: Metronidazolum
Norrænt Vörunúmer: 136953
Markaðsleyfishafi: Avia Pharma AB
Skráningardagsetning: 01.04.2016
Magn
Rosazol inniheldur sýklalyf sem einungis verkar gegn fáum tegundum örvera.
Rosazol er notað við húðsjúkdómnum rósroða. Rósroði kemur einkum fram sem roði eða rauðir
bólguhnúðar á enni, nefi, kinnum og höku. Rósroði er algengastur hjá konum milli 30 og 50 ára. Áður
en meðferð með Rosazol kremi hefst skal læknir staðfesta sjúkdómsgreininguna.

Ekki er ljóst hvort kremið verkar á rósroða með því að hafa áhrif á bakteríuflóru húðarinnar eða með
annarri verkun á húðina. Ekki hefur verið sýnt fram á að kremið sé virkt gegn öðrum húðsjúkdómum
eða sýkingum.

Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Rosazol inniheldur
- Virka innihaldsefnið er metrónídazól 10 mg/g.
- Önnur innihaldsefni eru mjólkursýra, natríumlárýlsúlfat, cetýlalkóhól, cetosterýlalkóhól og
hreinsað vatn.

Lýsing á útliti Rosazol og pakkningastærðir

Útlit: Hvítt krem.

Pakkningastærðir: 25 g.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Avia Pharma AB
Box 7688
103 95 Stokkhólmur
Svíþjóð

Framleiðandi
Farmaclair, 440 Avenue du Général de Gaulle, 14200 Herouville Saint Clair, Frakkland.

eða

Balkanpharma – Troyan AD, I Krayrechna Str., 5600 Troyan, Búlgaría.


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í október 2025.


Ítarlegar upplýsingar um þetta lyf eru birtar á http://www.serlyfjaskra.is