Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Rivotril - Tafla
Lyf fyrir menn
Rivotril-image

Rivotril - Tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N03AE01
ATC Heiti: Clonazepamum
Norrænt Vörunúmer: 593392
Markaðsleyfishafi: CHEPLAPHARM Arzneimittel GmbH
Skráningardagsetning: 01.01.1978
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Rivotril tilheyrir flokki benzódíazepína.
Rivotril verkar á miðtaugakerfið og dregur úr kvíða, svefnleysi og tilhneigingu til að fá krampa.
Læknirinn gæti hafa ávísað Rivotril handa þér sem viðbótarmeðferð við flestum tegundum flogaveiki,
einkum við minni háttar flogaveiki, þ.m.t. óvenjulegri minni háttar flogaveiki, Lennox-Gastaut
heilkenni eða vöðvakippaflogum eða fallflogum. Læknirinn gæti einnig hafa ávísað Rivotril handa þér
við ofantöldum tegundum flogaveiki ef núverandi lyfjagjöf dugar ekki til að þú sért laus við köst.
Læknirinn gæti hafa ávísað Rivotril handa þér sem viðbótarmeðferð við krampaflogum eða
kippaflogum hjá börnum (West heilkenni). Læknirinn gæti einnig hafa ávísað Rivotril handa þér við
ofantöldum tegundum flogaveiki ef núverandi lyfjagjöf dugar ekki til að þú sért laus við köst.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Rivotril inniheldur
- Virka innihaldsefnið er klónazepam.
- Önnur innihaldsefni:
- 0,5 mg töflur: Laktósa einhýdrat, maíssterkja, forhleypt sterkja, talkúm, magnesíumsterat,
rautt járnoxíð (E172) og gult járnoxíð (E172).
- 2 mg töflur: Laktósi (vatnsfrír), forhleypt sterkja, örkristallaður sellulósi og
magnesíumsterat.

Lýsing á útliti Rivotril og pakkningastærðir
Rivotril 0,5 mg: Kringlóttar, appelsínugular töflur með deiliskoru á annarri hliðinni og merkinu 0,5 á
hinni hliðinni.
Rivotril 2 mg: Kringlóttar, hvítar eða fölgular töflur með skoru í kross á annarri hliðinni og merkinu 2
á hinni hliðinni.

Rivotril töflur fást í eftirfarandi pakkningastærðum:
0,5 mg: Glas með 50 eða 150 töflum.
2 mg: Glas með 100 töflum.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
CHEPLAPHARM Arzneimittel GmbH
Ziegelhof 24
17489 Greifswald
Þýskaland

Framleiðandi
Recipharm Leganés S.L.U.
Calle Severo Ochoa 13
Leganés
28914 Madrid
Spánn


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2022.