Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Ritalin Uno - Hart hylki með breyttan losunarhraða
Lyf fyrir menn
Ritalin Uno-image

Ritalin Uno - Hart hylki með breyttan losunarhraða

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N06BA04
ATC Heiti: Methylphenidatum
Norrænt Vörunúmer: 013068
Markaðsleyfishafi: InfectoPharm Arzneimittel und Consilium GmbH
Skráningardagsetning: 01.02.2004
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Lyfið heitir Ritalin Uno og inniheldur virka efnið metýlfenidathýdróklóríð. Heitið
„metýlfenidat“ verður einnig notað í þessum fylgiseðli.

Notkun
Ritalin Uno er notað til meðferðar við athyglisbresti með ofvirkni (ADHD).
• Það er notað fyrir börn og unglinga á aldrinum 6 ára til 18 ára og fyrir fullorðna.
• Það er einungis notað eftir að meðferð án lyfja hefur verið reynd, svo sem ráðgjöf og
atferlismeðferð og hefur ekki reynst fullnægjandi.

Ekki má nota Ritalin Uno til meðferðar við athyglisbresti með ofvirkni hjá börnum yngri en 6 ára.
Ekki er vitað hvort það er óhætt fyrir börn yngri en 6 ára að nota lyfið eða hvort það gagnast þeim.

Verkun
Ritalin Uno eykur virkni í ákveðnum hlutum heilans sem eru ekki nægilega virkir. Lyfið getur hjálpað
til við að auka einbeitingu og athygli (lengja tímann sem athyglinni er haldið) og draga úr hvatvísi.

Lyfið er gefið sem hluti af meðferð sem venjulega felur í sér:
• Sálfræðimeðferð
• Fræðslu
• Félagsleg úrræði.

Ritalin Uno er eingöngu ávísað af sérfræðingum í hegðunarröskunum. Sérfræðingurinn mun fylgja
eftir frekari meðferð hjá þér. Ítarleg skoðun er nauðsynleg. Ef þú ert fullorðin/fullorðinn og hefur ekki
fengið meðferð áður, mun sérfræðingurinn framkvæma rannsóknir til að staðfesta að þú hafir verið
með ADHD frá barnsaldri. Notkun annarra meðferðarúrræða ásamt lyfjagjöf hjálpar til við að hafa
stjórn á ADHD.

Um athyglisbrest með ofvirkni (ADHD)
Börn og unglingar með athyglisbrest með ofvirkni eiga í erfiðleikum með að:
• sitja kyrr
• einbeita sér.
Þetta er eitthvað sem þau ráða ekki við.

Mörg börn og unglingar eiga erfitt með að gera þessa hluti. Vegna ADHD getur þetta valdið
erfiðleikum í daglegu lífi. Það getur verið erfitt fyrir börn og unglinga með ADHD að læra og vinna
heimaverkefni. Það er erfitt fyrir þau að hegða sér vel heima, í skólanum og annars staðar.

Fullorðnum með ADHD finnst oft erfitt að halda einbeitingu, eru eirðarlausir, óþolinmóðir og
eftirtektarlausir. Oft getur þeim reynst erfitt að skipuleggja einkalíf sitt og vinnu.

Ekki þarf að meðhöndla alla sjúklinga með ADHD með lyfjum.

ADHD hefur ekki áhrif á greind.

Rannsóknir meðan á meðferð með Ritalin Uno stendur
Læknirinn mun reglulega fylgjast með heilsufari þínu meðan þú ert á meðferð með Ritalin Uno (lestu
vandlega kafla 3 „Það sem læknirinn mun gera á meðan þú ert á meðferð“).

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Ritalin Uno inniheldur:

Virka innihaldsefnið er metýlfenidathýdróklóríð.
• Ritalin Uno 10 mg innihalda 10 mg af metýlfenidathýdróklóríði.
• Ritalin Uno 20 mg innihalda 20 mg af metýlfenidathýdróklóríði.
• Ritalin Uno 30 mg innihalda 30 mg af metýlfenidathýdróklóríði.
• Ritalin Uno 40 mg innihalda 40 mg af metýlfenidathýdróklóríði.
• Ritalin Uno 60 mg innihalda 60 mg af metýlfenidathýdróklóríði.

Önnur innihaldsefni eru: Súkrósakúlur (innihalda súkrósa og maíssterkju), ammoníummetakrýlat co-
fjölliða af gerð B, metakrýlsýru co-fjölliða af gerð A/metakrýlsýru-metýlmetakrýlat co fjölliða (1:1),
makrogol 6000, talkúm, þríetýlsítrat, gelatína, títantvíoxíð (E 171), gult járnoxíð (E 172), rautt
járnoxíð (E 172), svart járnoxíð (E 172) (einungis 10 mg, 40 mg og 60 mg hylki), shellak (E 904).

Lýsing á útliti Ritalin Uno og pakkningastærðir

Ritalin Uno hörð hylki með breyttan losunarhraða eru til í fimm styrkleikum: 10 mg, 20 mg, 30 mg,
40 mg og 60 mg.

Lýsing á útliti Ritalin Uno hylkjanna:

10 mg: Ljósbrún og hvít, hörð gelatínhylki í stærð 2 auðkennd með „NVR“ og „R10“ með
appelsínugulu letri.

20 mg: Hvít, hörð gelatínhylki í stærð 2 auðkennd með „NVR“ og „R20“ með appelsínugulu letri.

30 mg: Gul, hörð gelatínhylki í stærð 2 auðkennd með „NVR“ og „R30“ með appelsínugulu letri.

40 mg: Ljósbrún, hörð gelatínhylki í stærð 1 auðkennd með „NVR“ og „R40“ með appelsínugulu letri.

60 mg: Ljósbrún og gul, hörð gelatínhylki í stærð 00 auðkennd með „NVR“ og „R60“ með
appelsínugulu letri.

Lyfið fæst í pakkningum með 30 eða 100 hylkjum.
Ekki er víst að allir styrkleikar og pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi
INFECTOPHARM Arzneimittel und Consilium GmbH
Von-Humboldt-Straße 1
64646 Heppenheim
Þýskaland

Tölvupóstur: ritalin.medinfo.IS@infectopharm.com

Umboð á Íslandi
Vistor hf.
Sími: 535 7000

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2025.