Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Ritalin - Tafla
Lyf fyrir menn
Ritalin-image

Ritalin - Tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N06BA04
ATC Heiti: Methylphenidatum
Norrænt Vörunúmer: 163089
Markaðsleyfishafi: InfectoPharm Arzneimittel und Consilium GmbH
Skráningardagsetning: 01.12.1972
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Lyfið heitir Ritalin og inniheldur virka efnið „metýlfenidathýdróklóríð“. Heitið „metýlfenidat“ verður
einnig notað í þessum fylgiseðli.

Notkun
Ritalin er notað til meðferðar við athyglisbresti með ofvirkni (ADHD).
• Það er notað fyrir börn og unglinga á aldrinum 6 ára til 18 ára.
• Það er einungis notað eftir að meðferð án lyfja hefur verið reynd, svo sem ráðgjöf og
atferlismeðferð og hefur ekki reynst fullnægjandi.

Hvorki má nota Ritalin til meðferðar við athyglisbresti með ofvirkni hjá börnum yngri en 6 ára né hjá
fullorðnum. Ekki er vitað hvort það er óhætt fyrir þessa einstaklinga að nota lyfið eða hvort það
gagnast þeim.

Verkun
Ritalin eykur virkni í ákveðnum hlutum heilans sem eru ekki nægilega virkir. Lyfið getur hjálpað til
við að auka einbeitingu og athygli (lengja tímann sem athyglinni er haldið) og draga úr hvatvísi.

Lyfið er gefið sem hluti af meðferð sem venjulega felur í sér:
• Sálfræðimeðferð
• Fræðslu
• Félagsleg úrræði.

Ritalin er eingöngu ávísað af læknum sem hafa reynslu af hegðunarvandamálum hjá börnum og
unglingum. Læknirinn mun fylgja eftir frekari meðferð hjá þér. Ítarleg skoðun er nauðsynleg. Notkun
annarra meðferðarúrræða ásamt lyfjagjöf hjálpar til við að hafa stjórn á ADHD.

Um athyglisbrest með ofvirkni (ADHD)
Börn og unglingar með athyglisbrest með ofvirkni eiga í erfiðleikum með að:
• sitja kyrr

• einbeita sér.
Þetta er eitthvað sem þau ráða ekki við.
Mörg börn og unglingar eiga erfitt með að gera þessa hluti. Vegna ADHD getur þetta valdið
erfiðleikum í daglegu lífi. Það getur verið erfitt fyrir börn og unglinga með ADHD að læra og vinna
heimaverkefni. Það er erfitt fyrir þau að hegða sér vel heima, í skólanum og annars staðar.
Ekki þarf að meðhöndla alla sjúklinga með ADHD með lyfjum.
ADHD hefur ekki áhrif á greind barna og unglinga.

Rannsóknir meðan á meðferð með Ritalin stendur
Læknirinn mun reglulega fylgjast með heilsufari þínu meðan þú ert á meðferð með Ritalin (lestu
vandlega undirkaflann í kafla 3 „Það sem læknirinn mun gera á meðan þú ert á meðferð“).

Önnur notkun Ritalin: Drómasýki
• Læknar ávísa stundum Ritalin til meðferðar við drómasýki.
• Drómasýki er svefntruflun. Sjúklingar með drómasýki fá endurtekin köst af óviðráðanlegri
svefnþörf að degi til, jafnvel þótt þeir sofi vel á næturnar.
• Ritalin 10 mg er notað til að hafa stjórn á mikilli svefnþörf að degi til.
• Greining á drómasýki skal gerð af lækni á grundvelli skráningar á svefn-/vökumynstri.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Ritalin inniheldur:
• Virka innihaldsefnið er metýlfenidathýdróklóríð. Hver tafla inniheldur 10 mg af
metýlfenidathýdróklóríði.
• Önnur innihaldsefni eru kalsíumfosfat, mjólkursykur (laktósi), hveitisterkja,
gelatína, magnesíumsterat og talkúm.

Lýsing á útliti Ritalin og pakkningastærðir

Útlit
Ritalin 10 mg töflur eru hvítar, kringlóttar, flatar og með sniðbrún. Auðkenndar með „CG“ á annarri
hliðinni, „A/B“ á hinni hliðinni og á þeim er deiliskora. Dökkir blettir geta verið á töflunum.

Pakkningastærðir
Ritalin töflur eru til í einum styrkleika: 10 mg.

Lyfið er í þynnupakkningum með 30 töflum.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi
INFECTOPHARM Arzneimittel und Consilium GmbH
Von-Humboldt-Straße 1
64646 Heppenheim
Þýskaland

Tölvupóstur: ritalin.medinfo.IS@infectopharm.com

Umboð á Íslandi
Vistor hf.
Sími 535 7000

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í septmeber 2025.