Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Ríflúxín - Tuggutafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Ríflúxín - Tuggutafla

Lausasölulyf
ATC Flokkur: A02AD01
ATC Heiti: Blöndur saltsambanda
Norrænt Vörunúmer: 427499
Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.
Skráningardagsetning: 01.12.2024
Magn
Ríflúxín er sýrubindandi tafla með myntubragði sem hlutleysir magasýru í líkamanum.
Ríflúxín er notað til meðferðar á brjóstsviða og tengdum einkennum, t.d. magaóþægindum og
sýrubakflæði.

Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 7 daga.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Ríflúxín inniheldur

- Virku innihaldsefnin eru kalsíumkarbónat og magnesíumkarbónat
Hver tuggutafla inniheldur 680 mg af kalsíumkarbónati og 80 mg af magnesíumkarbónati.

- Önnur innihaldsefni eru vatnsfrí kísilkvoða, forhleypt sterkja, kópóvidón, xýlitól (E967),
umbreyttur (low-substituted) hýdroxýprópýlsellulósi, Spearmint SD bragðefni (bragðefnablöndur,
náttúruleg bragðefni – púlegon, mentófúran, maltódextrín, arabískt gúmmí (E414)), Menthol L
úðaþurrkað bragðefni (bragðefni, arabískt gúmmí (E414)), talkúm og magnesíumsterat.

Lýsing á útliti Ríflúxín og pakkningastærðir
Ríflúxín tuggutöflur eru ferningslaga, hvítar til nánast hvítar, tvíhvolfar töflur með rúnnuðum hornum.
Mál taflnanna eru: lengd 15 mm, breidd 15 mm og þykkt 3,9-4,3 mm.

Töflunum er pakkað í PVC/PVDC/álþynnur sem töflunum er þrýst úr. Hver þynna inniheldur 8 töflur.
Askjan inniheldur 16, 24, 48 eða 96 tuggutöflur og fylgiseðil.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi:
Alvogen ehf.
Smáratorgi 3
201 Kópavogur
Ísland

Framleiðandi:
Alkaloid - INT d.o.o.
Šlandrova ulica 4
1231 Ljubljana-Črnuče
Slóvenía

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Króatía - GATTART 680 mg/80 mg tablete za žvakanje
Búlgaría - GATTART 680 mg/80 mg chewable tablets/
ГАТТАРТ 680 mg/80 mg таблетки за дъвчене
Tékkland - Gattart
Pólland - Zgaginstop Antacidum.
Rúmenía - Gattart 680 mg/80 mg comprimate masticabile
Slóvenía - GATTART 680 mg/80 mg žvečljive tablete
Slóvakía- GATTART 680 mg/80 mg


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í apríl 2025.