Lyf fyrir menn

Rennie - Tuggutafla
Lausasölulyf
ATC Flokkur: A02AD01
ATC Heiti: Blöndur saltsambanda
Norrænt Vörunúmer: 538181
Markaðsleyfishafi: Bayer AB
Skráningardagsetning: 01.10.1995
Magn
Rennie tuggutöflur draga úr óþægindum eins og brjóstsviða og bakflæði, ásamt sýrutengdum
magaverkjum.
Rennie hlutleysir saltsýruna í maganum og sýrubindandi áhrifin koma fram innan nokkurra mínútna.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 7 daga.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Rennie inniheldur - Virku innihaldsefnin eru:
Kalsíumkarbónat 680 mg sem jafngildir 272,4 mg kalsíum
Magnesíumkarbónat 80 mg sem jafngildir 20,5 mg magnesíum.
- Önnur innihaldsefni eru:
Súkrósi 475 mg, bragðefni (sítróna og piparmynta), magnesíumsterat, paraffín olía, talkúm,
forhleypt maíssterkja, kartöflusterkja.
Lýsing á útliti Rennie og pakkningastærðir
Rennie tuggutöflurnar eru beinhvítar, flatar, ferkantaðar með piparmyntubragði, merktar með
„RENNIE“ á báðum hliðum.
Rennie fæst í pakkningastærðum með 24, 48 og 96 töflum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Bayer AB
Box 606
169 26 Solna
Svíþjóð
Framleiðandi
Delpharm Gaillard
33, rue de l’Industrie
74240 Gaillard
Frakkland
Ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið vinsamlegast hafið þá samband við fulltrúa markaðsleyfishafa.
Icepharma hf, Lynghálsi 13, 110 Reykjavík
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í nóvember 2021.