Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Ramíl - Tafla
Lyf fyrir menn
Ramíl-image

Ramíl - Tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C09AA05
ATC Heiti: Ramiprilum
Norrænt Vörunúmer: 046269
Markaðsleyfishafi: Teva B.V.
Skráningardagsetning: 01.03.2006
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Ramíl inniheldur lyf sem kallast ramipríl. Það tilheyrir flokki lyfja sem kallast ACE-hemlar.

Ramíl verkar með því að:
• Minnka framleiðslu efna í líkamanum sem geta hækkað blóðþrýstinginn.
• Slaka á æðum og víkka þær.
• Auðvelda hjartanu að dæla blóðinu um líkamann.

Ramíl er hægt að nota:
• Til meðferðar við háum blóðþrýstingi (háþrýstingi).
• Til að minnka hættuna á að þú fáir hjartaáfall eða heilaslag.
• Til að minnka hættuna á eða tefja versnun nýrnavandamála (hvort sem þú ert með sykursýki eða
ekki).
• Til að meðhöndla hjartað þegar það getur ekki dælt nægilega miklu blóði um líkamann
(hjartabilun).
• Sem meðferð í kjölfar hjartaáfalls (hjartadreps) með hjartabilun sem fylgikvilla.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en
tiltekið er í þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á
merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Ramíl inniheldur
- Virka innihaldsefnið er ramipríl.
Hver tafla inniheldur 2,5 mg, 5 mg eða 10 mg af ramipríli.
- Önnur innihaldsefni eru natríumhýdrógenkarbónat, laktósaeinhýdrat, natríumkroskarmellósa,
forhleypt sterkja, natríumsterýlfúmarat. Litarefni: 2,5 og 5 mg töflurnar innihalda gult járnoxíð
(E172). 5 mg töflurnar innihalda einnig rautt járnoxíð (E 172).

Lýsing á útliti Ramíl og pakkningastærðir

Útlit
Ramíl 2,5 mg töflur eru gular, hylkjalaga, flatar töflur með deiliskoru á annarri hliðinni og á brúnum.
Töflurnar eru merktar “R2”.

Ramíl 5 mg töflur eru bleikar, hylkjalaga, flatar töflur með deiliskoru á annarri hliðinni og á brúnum.
Töflurnar eru merktar “R3”.
Ramíl 10 mg töflur eru hvítar til beinhvítar, hylkjalaga, flatar töflur með deiliskoru á annarri hliðinni
og á brúnum. Töflurnar eru merktar “R4”.

Pakkningastærðir
10, 14, 20, 28, 30, 42, 50, 90, 98 og 100 töflur.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Teva B.V.
Swensweg 5
2031 GA Haarlem
Holland

Framleiðandi
Actavis Ltd.
BLB016 Bulebel Industrial Estate
Zejtun ZTN 3000
Malta

Actavis (Balkanpharma) Dupnitsa AD
3 Samokovsko Shose Str.
Dupnitsa 2600
Búlgaría

Umboð á Íslandi
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í febrúar 2023.