Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Quetiapin Krka - Forðatafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Quetiapin Krka - Forðatafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N05AH04
ATC Heiti: Quetiapinum
Norrænt Vörunúmer: 066497
Markaðsleyfishafi: KRKA d.d. Novo mesto
Skráningardagsetning: 01.04.2018
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Quetiapin Krka inniheldur efni sem kallast quetiapin. Það tilheyrir flokki lyfja sem nefnast geðrofslyf.
Hægt er að nota Quetiapin Krka til að meðhöndla ýmsa sjúkdóma, eins og:
• Þunglyndi í geðhvarfasýki (bipolar depression) og alvarlegar þunglyndislotur í alvarlegu
þunglyndi: þú finnur fyrir depurð. Þú getur fundið fyrir þunglyndi, fengið sektarkennd, verið
orkulaus, misst matarlyst eða getur ekki sofið.
• Oflæti (mania): þú finnur fyrir æsingi, ofsakæti, uppnámi, ákafa eða ofvirkni eða þú hefur
slæma dómgreind, getur m.a. verið árásargjarn/gjörn eða truflandi.
• Geðklofa: þú heyrir eða finnur fyrir hlutum sem ekki eru til staðar, trúir hlutum sem ekki eru
sannir eða finnur fyrir óeðlilegri tortryggni, kvíða, ert ráðvillt/ur, hefur sektarkennd, ert
spennt/ur eða finnur fyrir þunglyndi.

Þegar Quetiapin Krka er notað til að meðhöndla alvarlegar þunglyndislotur í alvarlegu þunglyndi, er
það notað til viðbótar öðru lyfi sem notað er til meðhöndlunar á þeim sjúkdómi.

Læknirinn mun hugsanlega áfram ávísa þér Quetiapin Krka, jafnvel þegar þér líður betur.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Quetiapin Krka inniheldur

- Virka innihaldsefnið er quetiapin.
50 mg forðatöflur:
Hver forðatafla inniheldur 50 mg af quetiapini (sem quetiapinhemifúmarat).
150 mg forðatöflur:
Hver forðatafla inniheldur 150 mg af quetiapini (sem quetiapinhemifúmarat).
200 mg forðatöflur:
Hver forðatafla inniheldur 200 mg af quetiapini (sem quetiapinhemifúmarat).
300 mg forðatöflur:
Hver forðatafla inniheldur 300 mg af quetiapini (sem quetiapinhemifúmarat).
400 mg forðatöflur:
Hver forðatafla inniheldur 400 mg af quetiapini (sem quetiapinhemifúmarat).
- Önnur innihaldsefni í 50 mg og 400 mg forðatöflunum eru hýprómellósi, laktósaeinhýdrat,
örkristallaður sellulósi, natríumsítrat-tvíhýdrat og magnesíumsterat í töflukjarnanum og
hýprómellósi, títantvíoxíð (E171) og makrógól 400 í töfluhúðinni.
Sjá kafla 2 „Quetiapin Krka inniheldur laktósa og natríum“.
Önnur innihaldsefni í 150 mg forðatöflunum eru hýprómellósi, laktósaeinhýdrat, örkristallaður
sellulósi, tvínatríumfosfat-tvíhýdrat og magnesíumsterat í töflukjarnanum og pólývínýlalkóhól,
títantvíoxíð (E171), makrógól 3000, talkúm, rautt járnoxíð (E172) og gult járnoxíð (E172) í
töfluhúðinni.
Sjá kafla 2 „Quetiapin Krka inniheldur laktósa og natríum“.
Önnur innihaldsefni í 200 mg og 300 mg forðatöflunum eru hýprómellósi, laktósaeinhýdrat,
örkristallaður sellulósi, tvínatríumfosfat-tvíhýdrat og magnesíumsterat í töflukjarnanum og
pólývínýlalkóhól, títantvíoxíð (E171), makrógól 3000, talkúm og gult járnoxíð (E172) í
töfluhúðinni.
Sjá kafla 2 „Quetiapin Krka inniheldur laktósa og natríum“.

Lýsing á útliti Quetiapin Krka og pakkningastærðir
50 mg forðatöflur eru hvítar til nánast hvítar, hylkislaga, örlítið tvíkúptar, filmuhúðaðar töflur með
skásniðnum brúnum, ígreyptar með „50“ á annarri hlið töflunnar. Töflustærð: 16,2 mm að lengd og
4,0 - 5,2 mm að þykkt.
150 mg forðatöflur eru bleik-appelsínugular, kringlóttar, tvíkúptar, filmuhúðaðar töflur með
skásniðnum brúnum. Töflustærð: 10 mm í þvermál og 4,6 - 6,0 mm að þykkt.
200 mg forðatöflur eru gulbrúnar, sporöskjulaga, tvíkúptar, filmuhúðaðar töflur. Töflustærð: 16 mm að
lengd og 5,6 - 7,1 mm að þykkt.
300 mg forðatöflur eru ljósbrúngular, hylkislaga, tvíkúptar, filmuhúðaðar töflur. Töflustærð: 19,1 mm
að lengd og 5,9 - 7,4 mm að þykkt.
400 mg forðatöflur eru hvítar til nánast hvítar, hylkislaga, tvíkúptar, filmuhúðaðar töflur, ígreyptar
með „400“ á annarri hliðinni. Töflustærð: 18,7 -19,5 mm að lengd og 5,5 - 7,1 mm að þykkt.

Quetiapin Krka er fáanlegt í pakkningum sem innihalda 10, 30, 50, 60, 90 og 100 forðatöflur í
OPA/ál/PVC/álþynnum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
KRKA, d.d. Novo mesto
Šmarješka cesta 6
8501 Novo mesto
Slóvenía

Framleiðandi
KRKA, d.d., Novo mesto, Šmarješka cesta 6, 8501 Novo mesto, Slóvenía
TAD Pharma GmbH, Heinz-Lohmann-Straße 5, 27472 Cuxhaven, Þýskaland

Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið

LYFIS ehf.
Sími: 534 3500
Netfang: lyfis@lyfis.is

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2025