Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Quetiapin Krka - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Quetiapin Krka - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N05AH04
ATC Heiti: Quetiapinum
Norrænt Vörunúmer: 112704
Markaðsleyfishafi: KRKA d.d. Novo mesto
Skráningardagsetning: 01.08.2019
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Quetiapin Krka inniheldur efni sem kallast quetiapin. Það tilheyrir flokki lyfja sem kallast geðrofslyf.
Hægt er að nota Quetiapin Krka til að meðhöndla ýmsa sjúkdóma, eins og:

• Þunglyndi í geðhvarfasýki (bipolar depression): þú finnur fyrir depurð. Þú getur fundið fyrir
þunglyndi, fengið sektarkennd, verið orkulaus, misst matarlyst eða getur ekki sofið.
• Oflæti (mania): þú finnur fyrir æsingi, ofsakæti, uppnámi, ákafa eða ofvirkni eða þú hefur
slæma dómgreind, getur m.a. verið árásargjarn/gjörn eða truflandi.
• Geðklofa: þú heyrir eða finnur fyrir hlutum sem ekki eru til staðar, trúir hlutum sem ekki eru
sannir eða finnur fyrir óeðlilegri tortryggni, kvíða, ert ráðvillt/ur, hefur sektarkennd, ert
spennt/ur eða finnur fyrir þunglyndi.

Læknirinn mun hugsanlega ávísa þér Quetiapin Krka áfram, jafnvel þegar þér líður betur.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Quetiapin Krka inniheldur
- Virka innihaldsefnið er quetiapin. Hver tafla inniheldur 25 mg, 100 mg, 150 mg, 200 mg eða
300 mg af quetiapini (sem quetiapinhemifúmarat).
- Önnur innihaldsefni eru laktósaeinhýdrat, kalsíumhýdrógenfosfat-tvíhýdrat, örkristallaður
sellulósi, póvidón, natríumsterkjuglýkólat (tegund A), magnesíumsterat í töflukjarnanum og
hýprómellósi, títantvíoxíð (E171), makrógól 4000, gult járnoxíð (E172) (einungis í 25 mg og
100 mg töflum) og rautt járnoxíð (E172) (einungis í 25 mg töflum) í filmuhúðinni.
Sjá kafla 2 „Quetiapin Krka inniheldur laktósa og natríum“.

Lýsing á útliti Quetiapin Krka og pakkningastærðir
25 mg töflurnar eru kringlóttar, ljósrauðar, filmuhúðaðar töflur með skásniðnum brúnum.
100 mg töflurnar eru kringlóttar, gulbrúnar, filmuhúðaðar töflur.
150 mg töflurnar eru kringlóttar, hvítar, filmuhúðaðar töflur með skásniðnum brúnum.
200 mg töflurnar eru kringlóttar, hvítar, filmuhúðaðar töflur.
300 mg töflurnar eru hylkislaga, hvítar, filmuhúðaðar töflur.

Quetiapin Krka filmuhúðaðar töflur eru fáanlegar í öskjum með 6 (einungis 25 mg töflur), 10, 20, 30,
30 x 1, 50, 60, 90, 98, 100, 100 x 1, 120 (einungis 150 mg og 300 mg töflur), 180 (einungis 150 mg og
300 mg töflur) eða 240 (einungis 150 mg og 300 mg töflur) töflum í þynnum og 250 töflum (einungis
100 mg og 200 mg) í íláti (HDPE).
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
KRKA, d.d., Novo mesto
Šmarješka cesta 6
8501 Novo mesto
Slóvenía

Framleiðandi
KRKA, d.d., Novo mesto, Šmarješka cesta 6, 8501 Novo mesto, Slóvenía
KRKA - FARMA d.o.o., V. Holjevca 20/E, 10450 Jastrebarsko, Króatía

Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið

LYFIS ehf.
Sími: 534 3500
Netfang: lyfis@lyfis.is

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2025.