Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Prometazin Actavis - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
Prometazin Actavis-image

Prometazin Actavis - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: R06AD02
ATC Heiti: Promethazinum
Norrænt Vörunúmer: 545827
Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf.
Skráningardagsetning: 01.07.2017
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Prometazin Actavis inniheldur lyf sem kallast prómetazínhýdróklóríð. Það tilheyrir flokki lyfja sem
kallast fentíazín. Það virkar með því að hemja náttúrlega efnið histamín í líkamanum sem veldur kláða
sem fylgir ofnæmisviðbrögðum. Þetta lyf hefur einnig slævandi áhrif.

Prometazin Actavis er hægt að nota við eftirfarandi aðstæður:
- skammtíma meðferð við svefnvandamálum
- skammtíma meðferð við kvíðaeinkennum
- til að stuðla að aukinni slökun fyrir skurðaðgerð eða tannaðgerð
- til meðferðar við eða til að hindra ferðaveiki (t.d. sjóveiki)
- til meðferðar við kláða í húð og ofnæmi
- til að koma í veg fyrir ógleði og sundl

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknisins og leiðbeiningum á merkimiða frá
lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Prometazin Actavis inniheldur
- Virka innihaldsefnið er prómetazínhýdróklóríð
- Önnur innihaldsefni eru:
Töflukjarni: örkristallaður sellulósi, kalsíumhýdrógenfosfat-tvíhýdrat, natríumsterkjuglýkólat,
sterínsýra, magnesíumsterat.
Töfluhúð: hýprómellósi (E464), makrógól (E1521), títantvíoxíð (E171), talkúm.

Lýsing á útliti Prometazin Actavis og pakkningastærðir
Prometazin Actavis 25 mg filmuhúðaðar töflur eru hvítar, sporöskjulaga, 9,8 mm x 6,2 mm, tvíkúptar,
merktar með „C25“ á annarri hliðinni og sléttar á hinni, fáanlegar í þynnupakkningum.

Pakkningastærðir
Þynnur:
2, 4, 8, 12, 16, 30, 50, 100 filmuhúðaðar töflur.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi

Actavis Group PTC ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður

Framleiðandi
Teva Operations Poland Sp. z o.o.
ul. Mogilska 80
31-546, Kraków
Pólland

Umboðsmaður á Íslandi:
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2025.