Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Progesterone Alvogen - Mjúkt hylki
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Progesterone Alvogen - Mjúkt hylki

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: G03DA04
ATC Heiti: Progesteronum
Norrænt Vörunúmer: 519188
Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.
Skráningardagsetning: 01.02.2025
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Hvað er Progesterone Alvogen
Þetta lyf inniheldur prógesterón sem er náttúrulegt kvenhormón sem framleitt er í líkamanum. Þetta lyf
verkar með því að stilla hormónajafnvægið í líkamanum. Þetta lyf er hormónameðferð með
prógestógeni.

Til hvers það er notað
Þetta lyf er notað ef þú finnur fyrir kvillum vegna skorts á prógesteróni í líkamanum. Læknirinn mun
biðja þig um að taka þetta lyf ef eftirfarandi á við um þig.

Til inntöku:

a) Þú ert með prógesterónskort
Magn prógesteróns sem framleitt er af eggjastokkum (í gulbúsfasa) er undir eðlilegum mörkum. Við
þessar aðstæður er lyfið notað til þess að meðhöndla óreglulegar tíðablæðingar.

b) Tíðablæðingar þínar hafa stöðvast varanlega (tíðahvörf)
Notkun með estrógeni sem hluti af hormónameðferð hjá konum við tíðahvörf með óskaddað leg.

Notkun í leggöng:

a) Stuðningur við meðgöngu meðan á frjósemismeðferð stendur
Progesterone Alvogen er notað hjá konum sem þurfa prógesterón aukalega til þess að styðja við
meðgöngu á meðan þær gangast undir frjósemismeðferð.

b) Til að koma í veg fyrir fyrirburafæðingu hjá konum með stuttan legháls
Progesterone Alvogen er notað til að koma í veg fyrir ótímabæra fæðingu hjá konum sem ganga með
einbura og eru með stuttan legháls.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Progesterone Alvogen 100 mg inniheldur

- Virka innihaldsefnið er prógesterón. Hvert hylki inniheldur 100 mg af prógesteróni.
- Önnur innihaldsefni vínberjafræolía (grape seed oil) og sojabaunalesitín.
- Hylkið sjálft er gert úr gelatíni, glýseróli og títantvíoxíði (E171).

Sjá kafla 2 „Progesterone Alvogen inniheldur sojabaunalesitín“.

Lýsing á útliti Progesterone Alvogen 100 mg og pakkningastærðir
100 mg mjúk hylki: egglaga beinhvít mjúk gelatínhylki, u.þ.b. 12 mm á lengd og 8 mm á breidd.

Hver þynna inniheldur 15 mjúk hylki
Hver askja inniheldur 15, 30, 45, 60 eða 90 mjúk hylki.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi:
Alvogen ehf.
Smáratorgi 3
201 Kópavogur
Ísland

Framleiðandi:
Laboratorios León Farma, S.A .
C/ La Vallina s/n
Polígono Industrial Navatejera
24193 Villaquilambre, León
Spánn


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2024.