Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Progestan - Mjúkt leggangahylki
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Progestan - Mjúkt leggangahylki

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: G03DA04
ATC Heiti: Progesteronum
Norrænt Vörunúmer: 158702
Markaðsleyfishafi: Besins Healthcare Ireland Limited
Skráningardagsetning: 01.01.2025
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Heiti lyfsins er Progestan. Progestan inniheldur hormón sem kallast prógesterón.

Við hverju Progestan er notað
Hægt er að nota Progestan til stuðnings við þungun í glasafrjóvgunarferli (IVF).

Til stuðnings við þungun
Progestan er ætlað konum sem þurfa auka prógesterón á meðan þær eru í tæknifrjóvgunarmeðferð (Assisted
Reproductive Technology, ART).
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Progestan inniheldur
• Virka innihaldsefnið er prógesterón. Hvert hylki inniheldur 300 mg af prógesteróni.
• Önnur innihaldsefni hylkisins eru hreinsuð sólblómaolía, sojabaunalesitín, gelatín, glýseról (E422),
títantvíoxíð (E171) og hreinsað vatn.

Lýsing á útliti Progestan og pakkningastærðir
Hylkin eru ílöng og örlítið gulleit, mjúk gelatínhylki sem innihalda hvítleita olíukennda dreifu. Stærð 300 mg
hylkis er um það bil 2,5 cm x 0,8 cm.

Progestan kemur í hvítum plastglösum úr háþéttnipólýetýleni (HDPE) með hvítu pólýprópýlenskrúfloki og
barnalæsingu ásamt silfurlituðu innsigli sem hægt er að rífa. Pakkningastærð: 1 glas inniheldur 15 hylki.

Markaðsleyfishafi
Besins Healthcare Ireland Ltd
Plaza 4, Level 4 Custom House Plaza,
Harbourmaster Place,
International Financial Services Centre,
Dublin 1,
D01 A9N3
Írland

Framleiðandi
Cyndea Pharma S.L.
Poligono Industrial Emiliano Revilla Sanz
Avenida de Agreda, 31
Olvega 42110 (Soria)
Spánn

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Búlgaría, Eistland, Ungverjaland, Króatía, Kýpur, Frakkland, Ítalía, Malta, Holland, Noregur, Pólland,
Portúgal, Svíþjóð, Slóvenía, Slóvakía, Spánn: Utrogestan
Belgía, Írland, Lúxemborg: Utrogestan Vaginal

Finnland: Lugesteron
Lettland, Litháen: Progesterone Besins
Tékkland: Progesteron Besins
Danmörk, Ísland: Progestan

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í desember 2024.

Upplýsingar sem hægt er að nálgast annars staðar

Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef: www.ima.is