Lyf fyrir menn

Pregabalin Krka - Hart hylki
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N02BF02
ATC Heiti: pregabalin
Norrænt Vörunúmer: 100807
Markaðsleyfishafi: Krka, d.d., Novo mesto
Skráningardagsetning: 01.03.2015
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Pregabalin Krka tilheyrir flokki lyfja sem notuð eru við meðferð á flogaveiki, taugaverkjum og
almennri kvíðaröskun (GAD) hjá fullorðnum.
Útlægir og miðlægir taugaverkir: Pregabalin Krka er notað til meðhöndlunar á langvarandi verkjum
af völdum taugaskemmda. Fjöldi mismunandi sjúkdóma getur valdið útlægum taugaverkjum, eins og
sykursýki eða ristill. Verkjatilfinningunni hefur verið lýst sem hita, sviða, slætti, skoti, sting, nístandi,
krampa, verk, dofa, tilfinningaleysi, náladofa. Skapbreytingar, svefntruflanir og þróttleysi (þreyta) geta
einnig fylgt útlægum og miðlægum taugaverkjum og þeir geta haft áhrif á líkamlega og félagslega
virkni sem og almenn lífsgæði.
Flogaveiki: Pregabalin Krka er notað til meðhöndlunar á sérstakri tegund af flogaveiki (staðflog með
eða án síðkominna alfloga) hjá fullorðnum. Læknirinn ávísar þér Pregabalin Krka þegar núverandi
meðferð dugar ekki lengur til þess að hafa stjórn á flogaveikinni. Þú átt að taka Pregabalin Krka sem
viðbótarmeðferð við þá meðferð sem þú ert þegar á. Pregabalin Krka er ekki ætlað til að nota eitt sér
og á alltaf að nota með öðrum flogaveikilyfjum.
Almenn kvíðaröskun: Pregabalin Krka er notað til meðhöndlunar á almennri kvíðaröskun. Einkenni
almennrar kvíðaröskunar eru langvarandi mikill kvíði og áhyggjur sem erfitt er að hafa stjórn á. Önnur
einkenni almennrar kvíðaröskunar geta verið eirðarleysi eða spenna, þreyta, einbeitingarskortur eða
minnisleysi, skapstyggð, vöðvaspenna eða svefnerfiðleikar. Þetta er frábrugðið daglegri streitu og
spennu.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Hvað inniheldur Pregabalin Krka - Virka innihaldsefnið er pregabalin. Hvert hart hylki inniheldur 25 mg, 50 mg, 75 mg, 100 mg,
150 mg, 200 mg, 225 mg eða 300 mg af pregabalini.
- Önnur innihaldsefni í hylki eru forhleypt sterkja, talkúm (E553b).
- Önnur innihaldsefni í 25 mg hörðum hylkjum eru títantvíoxíð (E171), gelatín, svart prentblek
(shellac (E904), svart járnoxíð (E172), própýlenglýkól (E1520)) í hylkisskel.
- Önnur innihaldsefni í 50 mg og 75 mg hörðum hylkjum eru títantvíoxíð (E171), gelatín, gult
járnoxíð (E172), svart prentblek (shellac (E904), svart járnoxíð (E172), própýlenglýkól
(E1520)) í hylkisskel.
- Önnur innihaldsefni í 100 mg hörðum hylkjum eru títantvíoxíð (E171), gelatín, rautt járnoxíð
(E172), hvítt prentblek (shellac (E904), própýlenglýkól (E1520), kalíumhýdroxíð (E525),
títantvíoxíð (E171)) í hylkisskel.
- Önnur innihaldsefni í 150 mg hörðum hylkjum eru títantvíoxíð (E171), gelatín, rautt járnoxíð
(E172), gult járnoxíð (E172), svart prentblek (shellac (E904), svart járnoxíð (E172),
própýlenglýkól (E1520)) í hylkisskel.
- Önnur innihaldsefni í 200 mg og 225 mg hörðum hylkjum eru títantvíoxíð (E171), gelatín, rautt
járnoxíð (E172), gult járnoxíð (E172), svart járnoxíð (E172), svart prentblek (shellac (E904),
svart járnoxíð (E172), própýlenglýkól (E1520)) í hylkisskel.
- Önnur innihaldsefni í 300 mg hörðum hylkjum eru títantvíoxíð (E171), gelatín, rautt járnoxíð
(E172), gult járnoxíð (E172), svart járnoxíð (E172), hvítt prentblek (shellac (E904),
própýlenglýkól (E1520), kalíum hýdroxíð (E525) títantvíoxíð (E171)) í hylkisskel.
Útlit Pregabalin Krka og pakkningastærðir
Hörð hylki.
25 mg hörð hylki: Meginhluti hylkisins er hvítur, hylkislokið er hvítt. Hylkislokið er merkt „P25“ með
svörtu letri. Innihald hylkisins er hvítt til beinhvítt duft. Lengd hylkis: 13,8-14,8 mm.
50 mg hörð hylki: Meginhluti hylkisins er hvítur, hylkislokið er ljósgult. Hylkislokið er merkt „P50“
með svörtu letri. Innihald hylkisins er hvítt til beinhvítt duft. Lengd hylkis: 15,3-16,2 mm.
75 mg hörð hylki: Meginhluti hylkisins er brúngulur, hylkislokið er brúngult. Hylkislokið er merkt
„P75“ með svörtu letri. Innihald hylkisins er hvítt til beinhvítt duft. Lengd hylkis: 13,8-14,8 mm.
100 mg hörð hylki: Meginhluti hylkisins er rauðbrúnn, hylkislokið er rauðbrúnt. Hylkislokið er merkt
„P100“ með hvítu letri. Innihald hylkisins er hvítt til beinhvítt duft. Lengd hylkis: 15,3-16,2 mm.
150 mg hörð hylki: Meginhluti hylkisins er hvítur, hylkislokið er gulbrúnt. Hylkislokið er merkt
„P150“ með svörtu letri. Innihald hylkisins er hvítt til beinhvítt duft. Lengd hylkis: 17,2-18,3 mm.
200 mg hörð hylki: Meginhluti hylkisins er brúnn, hylkislokið er brúnt. Hylkislokið er merkt „P200“
með svörtu letri. Innihald hylkisins er hvítt til beinhvítt duft. Lengd hylkis: 18,7-19,8 mm.
225 mg hörð hylki: Meginhluti hylkisins er hvítur, hylkislokið er brúnt. Hylkislokið er merkt „P225“
með svörtu letri. Innihald hylkisins er hvítt til beinhvítt duft. Lengd hylkis: 18,7-19,8 mm.
300 mg hörð hylki: Meginhluti hylkisins er hvítur, hylkislokið er dökkbrúnt. Hylkislokið er merkt
„P300“ með hvítu letri. Innihald hylkisins er hvítt til beinhvítt duft. Lengd hylkis: 20,0-22,1 mm.
Pregabalin Krka er fáanlegt í öllum styrkleikum í þynnupakkningum í öskju með 14, 20, 56, 60, 84, 90,
98 og 100 hörðum hylkjum.
Pregabalin Krka í styrkleikunum 75 mg og 150 mg er fáanlegt í HDPE ílátum í öskju með 100 hörðum
hylkjum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
KRKA, d.d., Novo mesto, Šmarješka cesta 6, 8501 Novo mesto, Slóvenía
Framleiðandi
KRKA, d.d., Novo mesto, Šmarješka cesta 6, 8501 Novo mesto, Slóvenía
TAD Pharma GmbH, Heinz-Lohmann-Straße 5, 27472 Cuxhaven, Þýskaland
Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið
LYFIS ehf.
Sími: 534 3500
lyfis@lyfis.is
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í apríl 2024.