Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Plaquenil - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
Plaquenil-image

Plaquenil - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: P01BA02
ATC Heiti: Hydroxychloroquinum
Norrænt Vörunúmer: 166157
Markaðsleyfishafi: Sanofi-aventis Norge AS
Skráningardagsetning: 01.12.1972
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.

Plaquenil inniheldur hýdroxýklórókín sem notað er til forvarnar og meðferðar á tilteknum gerðum
malaríu. Plaquenil er einnig notað til meðferðar við tilteknum bólgusjúkdómum, svo sem iktsýki og
rauðum úlfum (SLE), sem og stöku gerðum af húðútbrotum af völdum ljóss.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Plaquenil inniheldur

- Virka innihaldsefnið er hýdroxýklórókínsúlfat 200 mg.
- Önnur innihaldsefni eru: Laktósaeinhýdrat, póvídón, maíssterkja, magnesíumsterat,
hýprómellósa, makrógól 4.000 og títantvíoxíð (E 171).

Lýsing á útliti Plaquenil og pakkningastærðir

Kringlóttar, hvítar töflur, merktar „HCQ“ á annarri hliðinni og „200“ á hinni hliðinni.

Töflurnar koma í þynnupakkningu með 100 töflum.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi:
sanofi-aventis Norge AS, Pósthólf 133, 1325 Lysaker, Noregur

Framleiðandi:
sanofi-aventis, S.A., 17404 Riells i Viabrea (Girona), Spánn.

Umboð á Íslandi
Vistor ehf., sími 535 7000.

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í maí 2025.

Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef Lyfjastofnunar, www.serlyfjaskra.is.