Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Picoprep - Mixtúruduft, lausn
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Picoprep - Mixtúruduft, lausn

Lausasölulyf
ATC Flokkur: A06AB58
ATC Heiti: Picosulfatum natrium í blöndum
Norrænt Vörunúmer: 397796
Markaðsleyfishafi: Ferring Lægemidler A/S
Skráningardagsetning: 01.10.2011
Magn
Picoprep er duft sem inniheldur natríumpicosúlfat og hefur hægðalosandi áhrif með því að auka
þarmahreyfingar. Picoprep inniheldur einnig magnesíumsítrat, aðra tegund hægðalosandi efnis sem
bindur vökva í þörmum og framkallar skolunaráhrif.

Picoprep er notað hjá fullorðnum, unglingum og börnum frá eins árs aldri til að hreinsa þarma fyrir
röntgenmyndatöku, holsjárskoðun (speglun) eða skurðaðgerð þegar það er talið nauðsynlegt.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Picoprep inniheldur

- Virka innihaldsefnið í 1 bréfi eru: natríumpicosúlfat 10 mg, magnesíumoxíð, létt 3,5 g og
sítrónusýra 12 g sem saman mynda magnesíumsítrat í lausn.
- Önnur innihaldsefni eru kalíumvetniskarbónat, natríumsakkarín og náttúrulegt úðaþurrkað
appelsínubragðefni sem inniheldur akasíugúmmí, laktósa, askorbínsýru og bútýlhýdroxýanísól.

Lýsing á útliti Picoprep og pakkningastærðir
Picoprep er mixtúruduft, lausn sem leyst er upp fyrir inntöku. Picoprep er í pakkningum með
2 bréfum, 100 bréfum (50 pakkningar með 2 bréfum), eða 300 bréfum (150 pakkningar með
2 bréfum).

Mæliskeið fylgir pakkningunni til að tryggja rétta skömmtun fyrir börn. Mæliskeiðin er notuð til að
mæla 4 g af dufti (4,75 ml). Þú átt eingöngu að nota mæliskeiðina ef þú ert að mæla skammta fyrir
börn undir 9 ára aldri.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
Ferring Lægemidler A/S
Amager Strandvej 405
2770 Kastrup
Danmörk

Umboð á Íslandi
Vistor hf., sími: 535-7000
Framleiðandi
Ferring GmbH
Wittland 11
D-24109 Kiel
Þýskaland


Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Picolax
Bretland

Picoprep: Austurríki, Belgía, Búlgaría, Kýpur, Tékkland, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland,
Þýskaland, Grikkland, Ungvejaland, Ísland, Ítalía, Lettland, Litháen, Lúxemborg, Holland, Noregur,
Portúgal, Rúmenía, Slóvakía, Spánn, Svíþjóð.


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2025.