Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Penomax - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Penomax - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J01CA08
ATC Heiti: Pivmecillinamum
Norrænt Vörunúmer: 148263
Markaðsleyfishafi: Orion Corporation
Skráningardagsetning: 01.09.2012
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Virka innihaldsefnið í Penomax, pivmecillinam, er sýklalyf sem tilheyrir lyfjaflokki sem kallast
penicillín. Penomax verkar með því að drepa bakteríur sem valda sýkingu. Ef sýkingin er ekki
meðhöndluð getur bakterían haldið áfram að fjölga sér í líkamanum.

Penomax er notað við þvagfærasýkingum.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Penomax inniheldur

- Virka innihaldsefnið er pivmecillinamhýdróklóríð. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 200 mg.
- Önnur innihaldsefni í töflukjarnanum eru örkristallaður sellulósi og magnesíumsterat.
- Önnur innihaldsefni í filmuhúðinni eru hyprómellósi og tríacetín.

Lýsing á útliti Penomax og pakkningastærðir

Hvítar til beinhvítar kringlóttar, kúptar, filmuhúðaðar töflur merktar með „F“ á annarri hliðinni og
„48“ á hinni.

Pakkningastærðir:
Þynnur: 9, 14, 15, 20, 30 og 40 töflur
Ílát: 9, 14, 15, 20, 30, 40 og 100 töflur. Ílátið inniheldur þurrkefni (poka með kísilhlaupi).

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
Orion Corporation
Orionintie 1
FI-02200 Espoo
Finnland

Framleiðandi
Orion Corporation Orion Pharma
Orionintie 1
FI-02200 Espoo
Finnland

Umboð á Íslandi:
Vistor ehf. Sími: 535 7000.

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:

Danmörk, Finnland, Noregur, Svíþjóð, Ísland: Penomax

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í janúar 2026.