Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Parkódín forte - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
Parkódín forte-image

Parkódín forte - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N02AJ06
ATC Heiti: codeine and paracetamol
Norrænt Vörunúmer: 035495
Markaðsleyfishafi: Teva B.V.
Skráningardagsetning: 01.05.2018
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Lyfið heitir Parkódín forte.
Parkódín forte inniheldur tvær mismunandi tegundir verkjalyfja sem kallast parasetamól og kódein
(sem kódeinfosfathemihýdrat). Kódein tilheyrir flokki lyfja sem kallast ópíóíð verkjalyf. Parkódín
forte má nota hjá börnum eldri en 12 ára gegn tímabundnum miðlungsalvarlegum til alvarlegum
verkjum sem önnur verkjalyf svo sem parasetamól eða íbúprófen duga ekki gegn ein sér.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknisins og leiðbeiningum á merkimiða frá
lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Parkódín forte inniheldur

Virku innihaldsefnin eru paracetamól og kódeinfosfathemihýdrat. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur
500 mg af parasetamóli og 30 mg af kódeinfosfati.

Önnur innihaldsefni eru póvidón (K29/K32), magnesíumsterat, vatnsfrí kísilkvoða, talkúm (E553b),
natríumkroskarmellósi, kópóvídón (25,2 30,8), örkristallaður sellulósi, hýprómellósa (E464),
makrógól (E1521) og títantvíoxíð (E171).

Parkódín forte inniheldur natríum. Sjá kafla 2.

Lýsing á útliti Parkódín forte og pakkningastærðir

Parkódín forte 500 mg/30 mg filmuhúðaðar töflur eru hvítar, sporöskjulaga, 8,5 x 17 mm, tvíkúptar
töflur, merktar „5 3“ á annarri hliðinni með deiliskoru á hinni.

Pakkningastærðir:
Hvítar PVC/álþynnur eða hvítar PVC/ál/PET/pappírsþynnur með barnaöryggi: 8, 10, 16, 20, 24, 30,
40, 50, 90 og 100 filmuhúðaðar töflur.

Hvít töfluílát úr plasti með hvítu skrúfloki með barnaöryggi: 50, 100 og 200 filmuhúðaðar töflur.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
Teva B.V.
Swensweg 5
2031 GA Haarlem
Holland

Framleiðandi
Balkanpharma-Dupnitsa AD
3 Samokovsko Shosse Str.
Dupnitsa 2600
Búlgaría

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í ágúst 2025.