Lyf fyrir menn

Parkódín - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N02AJ06
ATC Heiti: codeine and paracetamol
Norrænt Vörunúmer: 065827
Markaðsleyfishafi: Teva B.V.
Skráningardagsetning: 01.02.2018
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Lyfið heitir Parkódín.
Parkódín inniheldur tvær mismunandi tegundir verkjalyfja sem kallast parasetamól og kódein (sem
kódeinfosfathemihýdrat). Kódein tilheyrir flokki lyfja sem kallast ópíóíð verkjalyf. Parkódín má nota
hjá börnum eldri en 12 ára gegn tímabundnum miðlungsalvarlegum til alvarlegum verkjum sem önnur
verkjalyf svo sem parasetamól eða íbúprófen duga ekki gegn ein sér.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknisins og leiðbeiningum á merkimiða frá
lyfjabúð.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Parkódín inniheldur Virku innihaldsefnin eru paracetamól og kódeinfosfathemihýdrat. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur
500 mg af parasetamóli og 10 mg af kódeinfosfati.
Önnur innihaldsefni eru póvidón (K29/K32), magnesíumsterat, vatnsfrí kísilkvoða, talkúm (E553b),
natríumkroskarmellósi, kópóvídón (25,2-30,8), örkristallaður sellulósi, hýprómellósi 2910 (E464),
makrógól 3350 (E1521), gult járnoxíð og títantvíoxíð (E171).
Parkódín inniheldur natríum. Sjá kafla 2.
Lýsing á útliti Parkódín og pakkningastærðir
Parkódín filmuhúðaðar töflur eru gular, sporöskjulaga, 8,5 x 17 mm, tvíkúptar töflur, merktar „5 1“
og með deiliskoru á annarri hliðinni.
Pakkningastærðir:
Hvítar PVC/álþynnur eða hvítar PVC/ál/PE/pappírsþynnur með barnaöryggi: 8, 10, 16, 20, 24, 30, 40,
50 og 100 filmuhúðaðar töflur.
Hvít töfluílát úr plasti með barnaöryggi: 50, 100 og 200 filmuhúðaðar töflur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
Teva B.V.
Swensweg 5
2031 GA Haarlem
Holland
Framleiðandi
Balkanpharma-Dupnitsa AD
3 Samokovsko Shosse Str., Dupnitsa 2600, Búlgaría
Umboðsmaður á Íslandi:
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í febrúar 2025.