Lyf fyrir menn

Paracetamol Medical Valley - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N02BE01
ATC Heiti: Paracetamolum
Norrænt Vörunúmer: 468133
Markaðsleyfishafi: Medical Valley Invest AB
Skráningardagsetning: 01.12.2023
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Paracetamol Medical Valley inniheldur parasetamól sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast
verkjastillandi og hitalækkandi lyf.
Paracetamol Medical Valley er notað við höfuðverk, tannverk, tíðaverk, vöðva- og liðverkjum,
gigtarverkjum, hita vegna kvefs og illkynja ofhita.
Paracetamol Medical Valley 500 mg er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 3 ára (>15 kg).
Paracetamol Medical Valley 1 g er ætlað fullorðnum og unglingum sem vega meira en 40 kg (eldri en
12 ára).
verkjastillandi og hitalækkandi lyf.
Paracetamol Medical Valley er notað við höfuðverk, tannverk, tíðaverk, vöðva- og liðverkjum,
gigtarverkjum, hita vegna kvefs og illkynja ofhita.
Paracetamol Medical Valley 500 mg er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 3 ára (>15 kg).
Paracetamol Medical Valley 1 g er ætlað fullorðnum og unglingum sem vega meira en 40 kg (eldri en
12 ára).
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Paracetamol Medical Valley inniheldur − Virka innihaldsefnið er parasetamól.
Hver tafla inniheldur 500 mg af parasetamóli.
Hver tafla inniheldur 1 g af parasetamóli.
− Önnur innihaldsefni eru: Töflukjarni: Forhleypt sterkja, magnesíum stereat (E470 b); Töfluhúð:
hýprómellósi (E464), makrógól, própýlenglýkól (E1520), títan tvíoxíð (E171), talkúm (E 553 b)
Lýsing á útliti Paracetamol Medical Valley og pakkningastærðir
Parasetamól filmuhúðaðar töflur, 500 mg, eru hvítar til næstum hvítar, (um 17 mm x 8 mm) hylkislaga
filmuhúðaðar töflur með deiliskoru á annarri hliðinni en ekki á hinni.
Töflunni má skipta í jafna skammta.
Parasetamól filmuhúðaðar töflur, 1 g, eru hvítar til næstum hvítar, (um 21 mm x 10 mm) hylkislaga
filmuhúðaðar töflur með deiliskoru á annarri hliðinni en ekki á hinni.
Töflunni má skipta í jafna skammta.
500 mg
Glös (HDPE) með skrúfloki (PP): 56, 105, 120, 300, 330, 336, 375 filmuhúðaðar töflur.
Glær PVC/ál þynnupakkning sem inniheldur 100 filmuhúðaðar töflur.
1 g
Glös (HDPE) með skrúfloki (PP): 105 filmuhúðaðar töflur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Medical Valley Invest AB
Bradgardsvagen 28
236 32 Hollviken
Svíþjóð
Framleiðandi
Laboratorios Liconsa, S.A.
Avda. Miralcampo 7
Poligono Industrial Miralcampo
Azuqueca de Henares
19200 Guadalajara
Spánn
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Danmörk Paracetamol Medical Valley
Ísland Paracetamol Medical Valley 500 mg; 1 g filmuhúðaðar töflur
Svíþjíð Paracetamol Medical Valley 500 mg; 1 g tabletter
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í mars 2025.