Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Paracet - Endaþarmsstíll
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Paracet - Endaþarmsstíll

Lausasölulyf
ATC Flokkur: N02BE01
ATC Heiti: Paracetamolum
Norrænt Vörunúmer: 454819
Markaðsleyfishafi: Karo Pharma AS
Skráningardagsetning: 01.07.2011
Magn
Paracet er verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Paracet inniheldur virka efnið parasetamól sem hefur
verkjastillandi áhrif, sennilega vegna þess að það vinnur gegn myndun efna (prostaglandína) sem
orsaka verki. Hitalækkandi áhrifin koma fram vegna áhrifa á hitastillandi stöðvar í heilanum.

Paracet er notað sem skammtímameðferð hjá börnum þyngri en 3 kg (0 ára) við:
- hita, t.d. vegna kvefs eða inflúensu
- vægum til miðlungsalvarlegum verkjum, eins og höfuðverk, tannverk, tíðaverk, vöðvaverk eða
verkjum í liðum.

Hafa skal samband við lækni ef um háan hita er að ræða.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Paracet endaþarmsstílar innihalda

- Virka innihaldsefnið er: Parasetamól 60 mg eða 125 mg.
- Önnur innihaldsefni eru: Hörð fita.

Lýsing á útliti Paracet og pakkningastærð
60 mg og 125 mg endaþarmsstílar: Hvítir tundurskeytalaga endaþarmsstílar.
10 stk. í hverri pakkningu.

Ekki er víst að báðar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Karo Pharma AS
Østensjøveien 27
Pósthólf 6733 Etterstad
0609 Osló
Noregur

Framleiðandi
Recipharm Karlskoga AB
Björkbornsvägen 5
SE-691 33 Karlskoga
Svíþjóð


Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið
Alvogen ehf.
Sími: 522 2900
Netfang: info@alvogen.is

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í ágúst 2025.