Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Panodil Junior - Mixtúra, dreifa
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Panodil Junior - Mixtúra, dreifa

Lausasölulyf
ATC Flokkur: N02BE01
ATC Heiti: Paracetamolum
Norrænt Vörunúmer: 495731
Markaðsleyfishafi: Haleon Denmark ApS
Skráningardagsetning: 01.04.2022
Magn
Panodil Junior er verkjastillandi og hitalækkandi lyf.

Nota má Panodil Junior við vægum verkjum, til dæmis við höfuðverk, tíðaverk, tannverk, vöðva- og
liðverkjum og til lækkunar sótthita t.d. við kvef og inflúensu.

Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki eftir 3 daga.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Panodil Junior inniheldur:
- Virka innihaldsefnið er parasetamól.
- Önnur innihaldsefni eru: Fljótandi sorbitól (ekki kristallað) (E420), xanthan gúmmí,
metýlparahýdroxýbensóat (E218), própýlparahýdroxýbensóat (E216), vatnsfrí sítrónusýra,
þrínatríumsítrattvíhýdrat, glýseról (hreinsað glýserín 99,5%), jarðaberjabragðefni, tvínatríum
EDTA, súkralósi, fljótandi maltitól (E965), hreinsað vatn.

Lýsing á útliti Panodil Junior og pakkningastærðir
Útlit
Panodil Junior 24 mg/ml er ekki alveg tær, hvít eða aðeins brúnleit dreifa.

Pakkningastærðir
60, 100 eða 200 ml mixtúra, dreifa ásamt skammtasprautu.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Haleon Denmark ApS
Delta Park 37
2665 Vallensbæk Strand
Danmörk

Framleiðandi
FARMACLAIR, Herouville Saint-Clair, Frakkland

eða

Haleon Denmark ApS, Delta Park 37, 2665 Vallensbæk Strand, Danmörk


Umboð á Íslandi
Artasan ehf.
Suðurhrauni 12a
210 Garðabæ

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í apríl 2025.