Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Panodil Hot - Mixtúruduft, lausn
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Panodil Hot - Mixtúruduft, lausn

Lausasölulyf
ATC Flokkur: N02BE01
ATC Heiti: Paracetamolum
Norrænt Vörunúmer: 557907
Markaðsleyfishafi: Haleon Denmark ApS
Skráningardagsetning: 01.10.2014
Magn
Panodil Hot er verkjastillandi og hitalækkandi lyf.

Nota má Panodil Hot við vægum verkjum, til dæmis við höfuðverk, tíðaverk, tannverk, vöðva- og
liðverkjum og til lækkunar sótthita t.d. við kvef og inflúensu.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 3 daga.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Panodil Hot 500 mg af mixtúrudufti, lausn til inntöku, í skammtapoka inniheldur
- Virka innihaldsefnið er parasetamól.
- Önnur innihaldsefni eru vínsýra, vatnsfrítt natríumsítrat, sakkarósi, aspartam (E951),
mentólbragðefni, sólberjabragðefni og rautt litarefni (E110, E122 og E151).

Lýsing á útliti Panodil Hot og pakkningastærðir
Útlit
Panodil Hot er ljósfjólublátt duft með hvítum kornum.

Pakkningastærðir
10 og 12 skammtapokar af mixtúrudufti, lausn til inntöku.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Haleon Denmark ApS
Delta Park 37
2665 Vallensbæk Strand
Danmörk

Framleiðandi
Haleon Alcala S.A., Madrid, Spánn.

Umboð á Íslandi
Artasan ehf,
Suðurhrauni 12a,
210 Garðabæ.


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í apríl 2025.