Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Ovixan - Krem
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Ovixan - Krem

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: D07AC13
ATC Heiti: Mometasonum
Norrænt Vörunúmer: 481208
Markaðsleyfishafi: Galenica AB
Skráningardagsetning: 01.06.2013
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Ovixan inniheldur virka efnið mómetasónfúróat og er barksteri til útvortis notkunar. Barksterum til
útvortis notkunar er skipt í fjóra flokka eftir styrkleika og áhrifum: Væg áhrif, miðlungsáhrif, mikil
áhrif og mjög mikil áhrif. Mómetasónfúróat tilheyrir flokknum „barksterar sem hafa mikil áhrif“.

Fullorðnir og börn eldri en 2 ára:
Ovixan hefur bólgueyðandi áhrif og dregur úr kláða. Ovixan er notað til að draga úr einkennum er
tengjast bólgusjúkdómum í húð sem hægt er að meðhöndla með barksterum, t.d. psoriasis (að
undanskildum útbreiddum skellupsoriasis) og vissum tegundum húðbólgu. Lyfið læknar ekki
húðsjúkdóminn en dregur úr einkennum hans.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Ovixan inniheldur

- Virka innihaldsefnið er mómetasónfúróat. Eitt gramm af Ovixan kremi inniheldur 1 mg af
mómetasónfúróati.
- Önnur innihaldsefni eru própýlenglýkól (E1520), cetósterýlalkóhól, kókoshnetuolía, sterínsýra,
macrogolsterat, glýserólmónósterat 40-55, vatnsfrítt natríumsítrat (til að stilla pH-gildi),
sítrónusýra (til að stilla pH-gildi) og hreinsað vatn.

Sjá kafla 2, „Ovixan inniheldur própýlenglýkól (E1520) og cetósterýlalkóhól“.

Lýsing á útliti Ovixan og pakkningastærðir

Ovixan 1 mg/g krem er hvítt, lyktarlaust krem í álklæddri plasttúpu úr pólýetýleni og með hvítu
skrúfloki úr pólýprópýleni.

Pakkningastærðir:
Túpur sem innihalda 15 g, 30 g, 35 g, 70 g, 90 g eða 100 g af kremi.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Galenica AB
P A Hanssons väg 41
205 12 Malmö
Svíþjóð

Framleiðandi Framleiðandi
Bioglan AB Lichtenheldt GmbH – Werk I
Borrgatan 31 Industriestraße 7 - 11
211 24 Malmö 23812 Wahlstedt
Svíþjóð Þýskaland


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í desember 2024.

Upplýsingar sem hægt er að nálgast annars staðar

Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef Lyfjastofnunar (www.serlyfjaskra.is)