Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Oviderm - Krem
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Oviderm - Krem

Lausasölulyf
ATC Flokkur: D02AX
ATC Heiti: Önnur mýkjandi og húðverndandi lyf
Norrænt Vörunúmer: 094843
Markaðsleyfishafi: Galenica AB
Skráningardagsetning: 01.03.2018
Magn
Oviderm er mýkjandi krem sem inniheldur virka efnið própýlenglýkól (25%). Própýlenglýkól hefur
vatnsbindandi eiginleika og að einhverju leyti örverueyðandi áhrif, á ákveðnar bakteríur og sveppi.

Oviderm er notað til meðhöndlunar á húðþurrki hjá fullorðnum og börnum.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Oviderm inniheldur

- Virka innihaldsefnið er própýlenglýkól. 1 gramm af kremi inniheldur 250 mg af própýlenglýkóli.
- Önnur innihaldsefni eru kókosfeiti, cetósterýlalkóhól, sterínsýra, makrógólsterat,
glýserólmónósterat, natríumsítrat, vatnsfrí sítrónusýra, hreinsað vatn.

Lýsing á útliti Oviderm og pakkningastærðir
Oviderm er hvítt, lyktarlaust krem. Það fæst í plasttúpu (100 g) eða plastíláti með pumpu (500 g) eða
Tvöföld pakkning, 600 g sem inniheldur plastílát með dælu (500 g) + plasttúpu (100 g).
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Galenica AB
P A Hanssons väg 41
205 12 Malmö
Svíþjóð

Framleiðandi
Bioglan AB
Borrgatan 31
211 24 Malmö
Svíþjóð

(Á eingöngu við tvöfalda pakkningu)
Galenica AB
P A Hanssons väg 41
205 12 Malmö
Svíþjóð


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í apríl 2025.