Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Nurofen Junior Jarðarber - Mixtúra, dreifa
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Nurofen Junior Jarðarber - Mixtúra, dreifa

Lausasölulyf
ATC Flokkur: M01AE01
ATC Heiti: Ibuprofenum
Norrænt Vörunúmer: 375168
Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare (Scandinavia) A/S
Skráningardagsetning: 01.08.2022
Magn
Íbúprófen tilheyrir flokki lyfja sem kallast bólgueyðandi gigtarlyf. Þessi lyf verka með því að breyta
svörun líkamans við verkjum og háum hita. Nurofen Junior er til skammtímameðferðar við:
• hita
• vægum til miðlungi alvarlegum verkjum

Þú verður að tala við lækni ef barninu þínu líður ekki betur eða ef barninu líður verr eftir 3 daga.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Nurofen Junior inniheldur

Virka innihaldsefnið er íbúprófen. Hver ml af mixtúru, dreifu inniheldur 40 mg af íbúprófeni.

Nurofen Junior Appelsín:
Önnur innihaldsefni eru sítrónusýrueinhýdrat, natríumsítrat, natríumklóríð, natríumsakkarín,
pólýsorbat 80, dómifenbrómíð, fljótandi maltitól, glýceról, xanthan gúmmí, appelsínubragðefni (sem
inniheldur hveitisterkju) og hreinsað vatn.

Nurofen Junior Jarðarber:
Önnur innihaldsefni eru sítrónusýrueinhýdrat, natríumsítrat, natríumklóríð, natríumsakkarín,
pólýsorbat 80, dómifenbrómíð, fljótandi maltitól, glýceról, xanthan gúmmí, jarðarberjabragðefni (sem
inniheldur própýlenglýkól) og hreinsað vatn.

Lýsing á útliti Nurofen Junior og pakkningastærðir

Nurofen Junior er beinhvít, seigfljótandi, dreifa með appelsínu-/eða jarðarberjabragði.

Hvert glas inniheldur 30 ml, 50 ml, 100 ml eða 150 ml.

Í pakkningunni er sprauta (5 ml sprauta kvörðuð við 1,25 ml, 2,5 ml, 3,75 ml og 5 ml).

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi:
Reckitt Benckiser Healthcare (Scandinavia) A/S
Vandtårnsvej 83A
2860 Søborg
Danmörk

Framleiðandi:
RB NL Brands B.V.
WTC Schiphol Airport
Schiphol Boulevard 207
1118 BH Schiphol
Holland

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:

Nurofen Junior Appelsín:
Þýskaland Nurofen Junior Fieber-und Schmerzsaft Orange 40mg/ml Suspension zum
Einnehmen
Austurríki Nureflex Junior Orange 4% Suspension zum Einnehmen
Ísland Nurofen Junior Appelsín
Noregur Nurofen 40mg/ml mikstur, suspensjon med appelsinsmak
Svíþjóð Nurofen Apelsin, 40 mg/ml, Oral suspension

Nurofen Junior Jarðarber:
Þýskaland Nurofen Junior Fieber-und Schmerzsaft Erdbeer 40mg/ml Suspension zum
Einnehmen
Austurríki Nureflex Junior Erdbeer 4% Suspension zum Einnehmen
Ísland Nurofen Junior Jarðarber
Noregur Nurofen 40mg/ml mikstur, suspensjon med jordbærsmak

Svíþjóð Nurofen Jordgubb, 40 mg/ml, Oral suspension

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í október 2025.