Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Norspan - Forðaplástur
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Norspan - Forðaplástur

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N02AE01
ATC Heiti: Buprenorphinum
Norrænt Vörunúmer: 016979
Markaðsleyfishafi: Mundipharma A/S
Skráningardagsetning: 01.01.2006
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Norspan forðaplástrar innihalda virka efnið búprenorfín sem tilheyrir flokki lyfja sem nefnast sterk
kvalastillandi lyf eða verkjalyf. Læknirinn hefur ávísað þeim til að lina frekar mikla, langvinna verki
sem kalla á notkun sterks verkjalyfs.

Norspan forðaplástur á ekki að nota til að lina bráðaverki.

Norspan forðaplástur verkar gegnum húð. Eftir að hann hefur verið settur á fer búprenorfín gegnum
húðina inn í blóðið. Hver plástur endist í sjö daga.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Norspan forðaplástur inniheldur
Virka innihaldsefnið er búprenorfín.

Norspan 5 míkrógrömm/klst. forðaplástur:
Hver forðaplástur inniheldur 5 mg af búprenorfíni í plástri sem er 6,25 cm

og losar um
5 míkrógrömm af búprenorfíni á klukkustund (á 7 daga tímabili).

Norspan 10 míkrógrömm/klst. forðaplástur:
Hver forðaplástur inniheldur 10 mg af búprenorfíni í plástri sem er 12,5 cm

og losar um
10 míkrógrömm af búprenorfíni á klukkustund (á 7 daga tímabili).

Norspan 20 míkrógrömm/klst. forðaplástur:
Hver forðaplástur inniheldur 20 mg af búprenorfíni í plástri sem er 25 cm

og losar um
20 míkrógrömm af búprenorfíni á klukkustund (á 7 daga tímabili).

Önnur innihaldsefni eru:
• Pólýakrýlat (Durotak 387-2051 & 387-2054)
• Levúlínsýra
• Óleýlóleat
• Póvídón
• Pólýetýlentereftalat.

Lýsing á útliti Norspan forðaplásturs og pakkningastærðir
Forðaplástur.

Mismunandi styrkleikar eru fáanlegir.

5 míkrógrömm/klst.: kringlóttur, drapplitaður plástur með rúnnuðum hornum merktur Norspan 5
μg/klst.
10 míkrógrömm/klst.: rétthyrndur, drapplitaður plástur með rúnnuðum hornum merktur Norspan 10
μg/klst.

20 míkrógrömm/klst.: kringlóttur, drapplitaður plástur með rúnnuðum hornum merktur Norspan 20
μg/klst.

Norspan forðaplástur er fáanlegur í öskjum með 1, 2, 3, 4, 5, 8, 10 eða 12 barnheldum pokum og er
einn plástur í hverjum þeirra.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
Mundipharma A/S
Frydenlundsvej 30
2950 Vedbæk
Danmörk

Framleiðandi
Mundipharma DC B.V.
Leusderend 16
3832 RC Leusden
Holland


Hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa á hverjum stað ef óskað er upplýsinga um lyfið:
Icepharma hf.
Lynghálsi 13
110 Reykjavík
Sími 540 8000

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í mars 2026.