Lyf fyrir menn

Norgesic 35 mg/450 mg - Tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: M03BC51
ATC Heiti: Orphenadrinum í blöndum
Norrænt Vörunúmer: 520759
Markaðsleyfishafi: Viatris ApS
Skráningardagsetning: 01.03.1981
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Norgesic er samsett lyf sem hefur vöðvaslakandi, verkjastillandi og hitalækkandi verkun.
Norgesic er notað til að draga úr vöðvaverkjum í tengslum við tognun, liðhlaup, vöðvaskaða,
ákveðnar sýkingar, bólgu í bandvef, þursabit, hálssveig, áverka á beinagrind og
streituhöfuðverk. Norgesic er einnig notað við tíðaverkjum.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en
tiltekið er í þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á
merkimiða frá lyfjabúð.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Norgesic inniheldur - Virku innihaldsefnin eru orfenadrínsítrat og parasetamól.
- Önnur innihaldsefni eru örkristallaður sellulósi, forgelatíneruð maíssterkja,
magnesíumsterat og kísiltvíoxíðkvoða.
Lýsing á útliti Norgesic og pakkningastærðir
Töflurnar eru í 30 eða 100 stykkja þynnupakkningu.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi:
Viatris ApS
Borupvang 1
2750 Ballerup
Danmörk
Framleiðandi:
Meda Pharma GmbH & Co. KG
Benzstraße 1
61352 Bad Homburg
Þýskaland
CANA SA Pharmaceuticals Laboratories
Irakliou Ave. 446
Iraklio Attiki 14122
Grikkland
Fine Foods & Pharmaceuticals N.T.M. S.p.A.
Via Grignano 43
24041 Brembate
Ítalía
Fulltrúi markaðsleyfishafa:
Icepharma hf.
Lynghálsi 13
110 Reykjavík
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í desember 2024.