Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Nezeril - Nefúði, lausn
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Nezeril - Nefúði, lausn

Lausasölulyf
ATC Flokkur: R01AA05
ATC Heiti: Oxymetazolinum
Norrænt Vörunúmer: 191403
Markaðsleyfishafi: Perrigo Sverige AB
Skráningardagsetning: 01.10.1994
Magn
Nezeril er notað til skammtímameðferðar við nefstíflu vegna kvefs.

Nezeril hefur skjótvirk bólgueyðandi áhrif sem draga úr nefstíflu og þar með léttir öndun. Áhrifin
koma fram innan nokkurra mínútna og vara í allt að 12 klst.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað Nezeril við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er
í þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknisins og leiðbeiningum á merkimiða frá
lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Nezeril inniheldur

Virka innihaldsefnið er oxymetazolinhýdróklóríð
1 ml inniheldur:
Nezeril nefúði 0,25 mg/ml: 0,25 mg oxymetazolinhýdróklóríð.
Nezeril nefúði 0,5 mg/ml: 0,5 mg oxymetazolinhýdróklóríð.
Önnur innihaldsefni eru tvínatríumedetat (E386), natríumtvíhýdrógenfosfattvíhýdrat (E339),
tvínatríumfosfattvíhýdrat (E339), natríumklóríð og hreinsað vatn.

Nezeril nefúði inniheldur ekki rotvarnarefni. Af tæknilegum ástæðum er úðaglasið eingöngu fyllt til
hálfs.

Lýsing á útliti Nezeril og pakkningastærðir
7,5 ml plastglas (HDPE) með úðadælu sem skammtar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi:
Perrigo Sverige AB
Box 7009
SE-164 07 Kista
Svíþjóð

Framleiðandi:
Farmaclair
440 Avenue du Général de Gaulle
14200 Hérouville-Saint-Clair
Frakkland

eða

Curida AS
Solbaervegen 5, Elverum

NO-2409
Noregur

Umboð á Íslandi:
Vistor hf.
Sími: 535 7000

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í júní 2023.