Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Nezeril - Nefdropar, lausn
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Nezeril - Nefdropar, lausn

Lausasölulyf
ATC Flokkur: R01AA05
ATC Heiti: Oxymetazolinum
Norrænt Vörunúmer: 054247
Markaðsleyfishafi: Perrigo Sverige AB
Skráningardagsetning: 01.01.1987
Magn
Nezeril er notað til skammtíma meðferðar við nefstíflu vegna kvefs.

Nezeril hefur skjótvirk bólgueyðandi áhrif sem draga úr nefstíflu og þar með léttir öndun. Áhrifin
koma fram innan nokkurra mínútna og vara í allt að 12 klst.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað Nezeril við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er
í þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknisins og leiðbeiningum á merkimiða frá
lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Nezeril inniheldur

Virka innihaldsefnið er oxymetazolinhýdróklóríð.
1 ml inniheldur:
Nezeril nefdropar 0,25 mg/ml: 0,25 mg oxymetazolinhýdróklóríð
Nezeril nefdropar 0,5 mg/ml: 0,5 mg oxymetazolinhýdróklóríð
Önnur innihaldsefni eru hýprómellósi, tvínatríumedetat, natríumtvíhýdrógenfosfattvíhýdrat,
tvínatríumfosfattvíhýdrat, natríumklóríð og hreinsað vatn.

Nezeril nefdropar í stakskammtaíláti innihalda ekki rotvarnarefni.

Lýsing á útliti Nezeril og pakkningastærð
Stakskammtaílát úr plasti. Stakskammtaílátin eru pökkuð í loftþéttan hlífðarpoka með
10 stakskammtaílátum í hverjum poka.

Pakkningastærð:
20 stk. stakskammtaílát, askja.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi:
Perrigo Sverige AB
Box 7009
SE-164 07 Kista
Svíþjóð

Framleiðandi:
Curida AS
Solbærveien 5
2409 Elverum
Noregur

Umboð á Íslandi:
Vistor hf.
Sími: 535 7000


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í desember 2022.