Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Nasogen Normal - Nefúði, lausn
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Nasogen Normal - Nefúði, lausn

Lausasölulyf
ATC Flokkur: R01AA07
ATC Heiti: Xylometazolinum
Norrænt Vörunúmer: 394182
Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.
Skráningardagsetning: 01.08.2025
Magn
Nasogen Normal er notað við nefstíflu.

Nasogen Normal dregur hratt og langvarandi úr þrota í nefi, það dregur úr bólgu í slímhúð í nefi. Það
hjálpar þannig til við að halda nefgöngum opnum, sem auðveldar öndun ef þú þjáist af stífluðu nefi.
Verkun lyfsins kemur fram innan 2 mínútna og varir í allt að 12 klst.

Nasogen Normal er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára.
Nasogen Normal er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. Aðrir styrkleikar eru í boði fyrir börn á
aldrinum 2-12 ára.

Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 7 daga.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Nasogen Normal inniheldur

- Virka innihaldsefnið er xýlómetazólín hýdróklóríð.

Lyfið inniheldur 1 mg af xýlómetazólín hýdróklóríði á hvern 1 ml.
- Önnur innihaldsefni eru bensalkóníumklóríð, dínatríumedetat, natríumdíhýdrógenfosfat-
díhýdrat, dínatríumfosfat-dódekahýdrat, natríumklóríð og hreinsað vatn.

Lýsing á útliti Nasogen Normal og pakkningastærðir
Nasogen Normal er tær, litlaus til næstum litlaus lausn.
Nasogen Normal fæst í brúnu glerglasi (10 ml) með skammta úðadælu og hlífðarhettu úr
pólýetýleni/pólýprópýleni.


Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Alvogen ehf.
Smáratorgi 3
201 Kópavogur
Ísland

Framleiðandi
Basic Pharma Manufacturing bv
Burgemeester Lemmensstraat 352
6163 JT Geleen
Holland


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í febrúar 2025.